• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bensínið dýrast á Íslandi

Samanburður á eldsneytisverði í 34 Evrópulöndum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. september 2022
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Samkvæmt samanburði á eldsneytisverði í 34 Evrópulöndum á vefsíðunni www.tolls.eu þá njótum við Íslendingar þess vafasama heiðurs að borga hæsta bensínverðið í Evrópu. Samanburðurinn nær yfir meðalverð á bensín- og dísillítra í löndunum þann 29. ágúst 2022.

Verðin eru uppreiknuð með skráðu viðmiðunargengi Evru hjá Seðlabanka Íslands.  

Tyrkland sem er að hluta í Evrópu en ekki meðlimur í Evrópusambandinu er með langlægsta bensínlítraverðið og þar á eftir koma Ungverjaland og Malta.

Ísland sker sig út varðandi hátt verð en verðin eru næst hæst í Noregi og þá Sviss. Fjallað er um málið á vef FÍB.

Meðalverð á bensínlítra 29. ágúst 2022

Í Evrópusambandinu er reglugerð sem kveður á um lágmarksskattheimtu aðildarríkjanna á hvern lítra af bensíni eða 0,36 Evrur, tæplega 51 íslensk króna. Búlgaría, Malta, Pólland og Ungverjaland leggja aðeins lágmarks ES-skattinn á bensín en öll hin aðildarríkin leggja meira á hvern lítra. Hollendingar leggja mest á hvern lítra eða 0,82 Evrur sem gerir tæplega 116 íslenskar krónur,  þá Ítalía 0,73 Evrur (103,15 ISK) og lokst Finnland 0,72 Evrur (101,75 ISK). Fastur bensínskattur í Noregi er 6,73 NOK á lítra sem gerir um 95,40 ISK. Íslensk stjórnvöld leggja 89,40 krónur á hvern bensínlítra fyrir utan virðisaukaskatt. Þetta eru fastir skattar á hvern bensínlítra en síðan bætist virðisaukaskattur á endanlegt útsöluverð. Virðisaukaskattur í Hollandi er 21% en 25% í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Finnland er með 24% eins og Ísland.

Skattar hafa veruleg áhrif á kostnað neytenda vegna bensínkaupa en skattar útskýra ekki þá staðreynd að íslenskir neytendur borga hæsta bensínverðið í Evrópu. Líkt og FÍB hefur oft ítrekað þá búum við hér á landi við mjög háa álagningu á hvern seldan lítra af eldsneyti og skort á samkeppni

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    213 deilingar
    Share 85 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?