Um kl. 11:00 í morgun varð umferðarslys á Norðausturvegi, skammt vestan við Laxamýri í Aðaldal. Lögregla er á vettvangi að rannsaka verksummerki og hefur þurft að loka fyrir umferð um veginn vegna rannsóknarinnar.
Hjáleið er frá Tjörn, hjá Laxárvirkjun og gegnum Reykjahverfi til Húsavíkur. Reiknað er með að vettvangsvinnu lögreglu verði lokið um kl. 14:00.
Þarna varð mjög harður árekstur tveggja bíla. Í þeim voru alls 5 erlendir ferðamenn. Enginn þeirra er í lífshættu en allir voru fluttir á sjúkrahús á Akureyri til skoðunar.
Umræða