Seðlabankinn hefur ítrekað kallað á aðhald en hefur sjálfur staðið í viðamiklum breytingum á höfuðstöðvum bankans við Kalkofnsveg. Í úttekt Viðskiptablaðsins í máí 2023 var ljóst að áætlaður kostnaður við breytingarnar væru komin 4% yfir áætlaðan 3 milljarða kostnað. Ekki liggur fyrir endanlegur kostnaður!
Í frétt Visis í desember 2022 var vitnað í viðtöl við Sendibílastjóra sem þóttu þetta skjóta skökku við; Ásgeir vildi með stýrivaxtahækkunum skikka fólk til þess að spara, hætta óráðsíu og sukkinu, táslumyndir frá Tene virtust eitur í beinum seðlabankastjóra en á sama tíma voru þeir að burðast með húsgögn fyrir milljónir í Seðlabankabygginguna?!
Í dag fann ég flugfargjald á Dohop, fram og til baka, til Tenerife á 31.576 kr. Sem þýðir að kostnaður við breytingar á Seðlabankanum, á tímum aðhalds og kröfu um niðurskurð, jafngildir því að hægt væri að flytja 98.809 Íslendinga, fram og til baka, til að smella af sér táslumynd og senda Seðlabankastjóra.
Þetta er auðvitað allt okkur að kenna.
,,Sumir eru jafnari en aðrir“
Seðlabankastjóri hækkar ríflega þrefalt í launum og spókar sig um í sólinni
Umræða