,,347 manns nánast ,,á götunni“
Mikla furðu vakti hár matarkostnaður í Ráðhúsinu í vikunni og voru þar nefndar stjarnfræðilega háar tölur. Þá kom fram í viðtali við Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur að í gær hefði verið andarsteik í matinn en það er jú jólamatur á mörgum vel settum heimilum þessa lands.
Á sama tíma og borgarstjórn gerir vel við sig veislumat og drykk á köldum þriðjudegi, hefur útigangsfólk búið sér svefnstað á Laugarnestanga í Reykjavík og hefur haldið þar til um nætur undanfarna mánuði. Þessir næturstaðir í borginni hafa reyndar verið fleiri og má þar t.d. nefna rjóður við Klambratún, Öskjuhlíðina og Örfirisey og þar er dvalið í öllum veðrum. Lítið sem ekkert hefur verið tekið á sárafátækt á Íslandi og enn búa t.d. þúsundir barna við bág kjör og fátækt í þessu moldríka landi og þá er ekki allt upptalið.
Skv. upplýsingum frá Reykjavíkurborg, ,,liggur ekki fyrir nákvæmlega hve margt þetta fólk er nú. Í byrjun árs 2017 höfðust, skv. úttekt, 76 manns við á götunni, 118 voru í gistiskýlum, 153 kváðust búa við ótryggar aðstæður og 58 hafði verið tryggð búseta til lengri tíma.“
Reikna má með að fjöldinn hafi aukist sem að býr við þessar ömurlegu aðstæður í Reykjavík en skv. þessari úttekt sem að var gerð árið 2017, voru samtals 347 manns nánast ,,á götunni“ eins og sagt er, en af þeim höfðu þó 118 aðgang að gistiskýlum. 76 manns höfðu skv. tölum fyrir árið 2017, einungis götuna sem næturskjól.
Heimildarmaður Fréttatímans segist telja að nú séu mun fleiri á götunni en árið 2017 og efaðist um að svona úttekt næði að mæla fjölda þeirra sem eru á götunni. ,,Það þarf meira en að sitja í glerhúsi og pikka inn í excelskjal, til þess að fá rétta tölu. Það er stórfurðulegt að ekki skuli vera betur fylgst með þessum málaflokki en svo, að verið sé að notast við tveggja ára gamlar tölur sem að sýna líklega ekki rétta mynd af ástandinu.“ Sagði viðmælandinn sem að þekkir vel til málaflokksins.