Einn heppinn miðahafi hlaut 1. vinning í Lottó í gærkvöld og byrjar árið tæplega 51 milljón ríkari. Sá heppni keypti miðann hér á lotto.is. Þá voru sex með bónusvinninginn og hlýtur hver þeirra 116 þúsund krónur en miðarnir voru keyptir á N1 Skógarseli, Leirunesti Akureyri, hér á lotto.is og eru þrír miðahafar í áskrift að Lottó.
Einn áskrifandi var svo með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker og hlýtur því 1. vinning kvöldsins, 2 milljónir króna í sinn hlut. Þá voru sjö miðahafar með 2. vinning í Jóker og fær hver þeirra 100 þúsund krónur fyrir.
Fjórir vinningshafanna eru í áskrift, tveir keyptu miðann á lotto.is og einn í app-inu. Áskrifendur komu vel út úr kvöldinu.
Nýjar fréttir:
https://gamli.frettatiminn.is/2020/01/05/opid-reidi-bref-til-katrinar-jakobsdottur-forsaetisradherra/
https://gamli.frettatiminn.is/2020/01/04/sjavarutvegsraherra-skipad-ad-taka-a-spillingu-og-breyta-kvotakerfinu/