Segjum að þið væruð að selja íbúðina ykkar. Væri það ekki nokkuð sérkennilegt ef þið mynduð tilkynna sérstaklega fyrir söluna að þið vilduð ekki endilega fá hæsta verðið fyrir íbúðina ykkar? Og þið mynduð einnig taka fram að nýr kaupandi mætti einnig fá allt innbúið ykkar, þannig að nýr eigandi gæti jafnvel borgað ykkur fyrir íbúðina með hluta af innbúinu sem þið skilduð eftir.
Þið væruð varla talin vera séðir seljendur með slíkar yfirlýsingar.
Á sama tíma kemur fjármálaráðherra fram og tilkynnir að það standi ekki endilega til að fá hæsta verðið fyrir sölu á eigum almennings í Íslandsbanka! Til viðbótar tilkynnir ráðherrann að það sé ekki líklegt að ríkið drægi arðgreiðslur úr bankanum áður en hann verður seldur. Þetta síðarnefnda er sérstaklega áhugavert í ljósi þess að allt að 40 milljarðar kr. liggja í bankanum í svokölluðu „umfram“ eigin fé bankans sem eigendur geta m.a. greitt sér að hluta í arð, kjósi þeir slíkt.
Nú er ein stærsta einkavæðing seinni ára hafin.
Sem sagt, verðið má vera lágt fyrir nýja eigendur og umfram eigið fé bankans (“innbúið”) skal vera sem mest fyrir þessa sömu nýju eigendur. Af hverju ætli það sé?
Kannski er ágætt að fjármálaráðherra sjái ekki um að selja íbúðina ykkar en því miður mun hann selja bankann ykkar
Segjum að þið væruð að selja íbúðina ykkar. Væri það ekki nokkuð sérkennilegt ef þið mynduð tilkynna sérstaklega fyrir…
Posted by Ágúst Ólafur Ágústsson on Thursday, 4 February 2021