7.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

Fólk sýni varkárni og fylgist með veðurspám – Hvassviðri og él

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Hugleiðingar veðurfræðings

Það verður sunnan hvassviðri eða stormur í dag með talsverðri eða mikilli rigningu sunnan- og vestanlands en úrkomulítið norðaustantil. Hlýnandi veður, hiti 5 til 11 stig síðdegis. Í kvöld kólnar vestantil með éljum. Á morgun verður suðvestan hvassviðri og él víða um landið en lengst af þurrt norðaustantil.
Kólnandi veður, hiti í kringum frostmark seinnipartinn. Skörp kuldaskil fara yfir landið á þriðjudag með snjókomu eða rigningu. Nálægt skilunum hvessir talsvert og má búast við stormi, jafnvel roki á meðan þau fara yfir. Auk þess eru líkur á eldingum í skilunum. Fólki bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.

Veðurhorfur á landinu

Sunnan 15-28 m/s, hvassast norðan- og norðvestantil. Talsverð rigning sunnan- og vestanlands, en annars skýjað með köflum. Dregur heldur úr vindi og úrkomu síðdegis. Hiti 5 til 11 stig, en kólnar vestantil í kvöld með slydduéljum. Suðvestan 10-18 á morgun og víða él, einkum sunnan- og vestantil. Hiti um frostmark seinni partinn.
Spá gerð: 05.02.2023 10:51. Gildir til: 07.02.2023 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Sunnan stormur með snjókomu eða slyddu, en snýst í suðvestan hvassviðri með éljum þegar líður á daginn. Hiti víða um eða undir frostmarki, en upp í 5 stig með suðurströndinni.

Á miðvikudag:
Minnkandi suðvestlæg átt og él, en yfirleitt bjart norðaustantil, 8-15 m/s seinni partinn. Frost 2 til 9 stig. Norðlægari um kvöldið og kólnar.

Á fimmtudag:
Vestlæg eða breytileg átt 8-15 m/s og dálítil él. Vaxandi suðaustanátt um kvöldið og þykknar upp sunnantil. Kalt í veðri.

Á föstudag:
Stíf suðaustlæg átt og víða snjókoma en síðar rigning sunnantil, sums staðar talsverð eða mikil úrkoma. Hvöss suðvestanátt þegar líður á daginn með skúrum. Frost 0 til 8 stig, en allt að 6 stiga hiti við suðurströndina.

Á laugardag:
Útlit fyrir að lægð fari yfir landið með breytilegum áttum og talsverðri úrkomu um allt land. Hiti í kringum frostmark. Spá gerð: 05.02.2023 08:28. Gildir til: 12.02.2023 12:00.