Einkavæðing Orkunnar – hvað með að einkavæða skattinn?
Fyrir rúmum 10 árum var innleiddur Orkupakki 2. Í því fólst einkavæðing á orkumarkaði. Þetta fór í gegnum þingið á sínum tíma, án þess að við föttuðum hvað þetta þýddi.
Núna vitum við það. Þetta var einkavæðing.
HS veitur og HS Orka eru góð dæmi um það sem mun gerast með Landsvirkjun & Orkuveituna.
Markaðsvæðing er einkavæðing. Svo einfalt er það.
Þeir Sjálfsstæðismenn sem eru hlyntir OP3 eru að ganga erinda þeirra afla sem vilja eignast hlut í þessum félögum.
Ég er kapitalisti, ég trúi á samkeppnismarkað og einkaframtakið, en Orkumálin eru bara annað mál. Það er galið að ætla að láta einkafyrirtæki stýra Orkuverði heimila og fyrirtækja á Íslandi.
Í dag njótum við eins lægsta orkuverðs í heiminum, fyrirtækin okkar eru að skila hagnaði í ríkisskassann og þjónusta þessara fyrirtækja er frábær. Hvað þarf að laga?
Það væri skynsamlegra að einkavæða skattkerfið.
Er ekki samkeppni góð?
Hvernig væri að geta valið hvaða skattfélag maður getur valið að greiða sína skatta?
„Skattfélagið býður þér að skila skattframtalinu viku síðar en hjá öðrum skattfélögum og veita þér ráðgjöf að kostnaðarlausu“.
Er ekki hægt að segja að einkaaðilar myndu þjónusta skattinnheimtu miklu betur en ríkið?
Hver er munurinn á Orkumálum þjóðarinnar og Skattinnheimtu? ENGINN.
Það er alveg sama hvað þú vilt gera í lífinu eða hvað þú ert að gera, þú ert með öllu háð/ur hita og rafmagni.
Það að tala um samkeppni á þeim markaði er jafn fáránlegt og að tala um samkeppni í skattinnheimtu.
Orkupakki 3 er enn eitt skrefið í átt að einkavæðingu Orkumála hér á landi.
Mín skoðun er að við eigum að fara úrút Orkupakka 2 & 1 í stað þess að fara áfram inní Orkupakka 3, 4 & 5.
Það er styttra til baka, við erum ekki í miðri á.
Orkumálin okkar eru gríðarlega mikilvæg og við þurfum að setja þau mál inní stjórnarskrá áður en lengra er haldið.
Og að lokum:
Er ég einn um að finnast skrítið að Guðlaugur Þór Þórðarson, sem er svarinn andstæðingur ESB í gegnum árin, sé að ferðast um landið að halda fundi um kosti Orkupakka 3? Hvaða „litla og einfalda“ tilskipun EES hefur fengið viðlíka kynningu í sögunni? Hvaða pressa er þetta á máli sem hann hefur sjálfur sagt að skipti í raun engu máli?
Ef eitthvað skiptir ekki máli, þarf þá að berjast með kjafti og klóm fyrir því að ná málinu í gegn? Þarf að ferðast um landið og halda fund eftir fund?
Ef þetta er ekki nóg til að finnast rauðu ljósin vera á sveimi, þá veit ég ekki hvað.

Umræða