• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

36% hækkun vaxta – 340% hærri vextir en meginvextir Seðlabankans

Lægstu vextir á Íslandi voru meira en þrefalt hærri en meginvextir Seðlabankans!

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. maí 2022
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Bankarnir skulda neytendum vaxtalækkanir!

HH skrifa um vaxtahækkanir

Seðlabankinn hækkaði meginvexti sína um 1 prósentustig í gær eða um 36% og flestir gera ráð fyrir að bankarnir fylgi í kjölfarið og hækki vexti á húsnæðislánum og öðrum neytendalánum.

Hagsmunasamtök heimilanna vilja minna bankana á að þegar meginvextir Seðlabankans lækkuðu á síðasta ári, þá fylgdu lækkanir bankanna ekki eftir í sama hlutfalli.

Almennt hafa vextir bankanna að undanförnu verið 40%-75% hærri en meginvextir Seðlabankans. Þannig að þegar meginvextir Seðlabankans hafa verið 2,75% hafa vextir bankanna á húsnæðislánum verið í kringum 4,7% á óverðtryggðum íbúðalánum. Að undanförnu hafa vextir bankanna þannig verið um 42% hærri en meginvextir Seðlabankans.

Hagsmunasamtök Heimilanna

En þá komum við að því sem gerðist, eða gerðist ekki, þegar viðmiðunarvextir Seðlabankans fóru niður í 0,75%. Þá hefðu vextir bankanna átt að fylgja hlutfallslega með og fara niður í rétt rúmlega 1% á óverðtryggðum lánum.

Vextir bankanna fóru hins vegar aldrei niður í það. Lægstu vextir bankanna á óverðtryggðum lánum fóru aldrei neðar en í 3,3%.

Það voru 340% hærri vextir en meginvextir Seðlabankans.

Þegar vextir á Íslandi voru lægstir voru þeir meira en þrefalt hærri en meginvextir Seðlabankans!

Jú þetta voru hagstæðari vextir en hafa áður sést á Íslandi, enda er það vaxtaokur sem hér hefur tíðkast fáheyrt í hinum vestræna heimi.

Það breytir samt ekki þeirri staðreynd að vaxtalækkanir Seðlabankans skiluðu sér ekki til neytenda, nema að litlu leyti.

Sú staðreynd sýnir líka fram á það að bankarnir þurfa ekki, frekar en þeir vilja, að fylgja fordæmi Seðlabankans, enda var þessi „skortur á lækkunum“ látinn algjörlega óátalinn af Seðlabankanum, fjármálaráðherra, Fjármálaeftirlitinu og öðrum „eftirlitsaðilum“.

Neytendur eiga þessar lækkanir inni hjá bönkunum. Það verður ekki bæði sleppt og haldið. Ef þeir sleppa því að lækka, geta þeir líka sleppt því að hækka.

Við krefjumst þess að bankarnir skili þessum vaxtahækkunum til sinna viðskiptavina!

Góð byrjun væri að sleppa því að hækka vexti núna þannig að álögur á heimilin hækki ekki frekar en orðið er. Framhaldið mætti svo skoða síðar. Almenningur er ekki fóður fyrir bankana!

Umræða
Share16Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Næsta lægð er væntanleg

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • 55,651,000 kr. greitt af 50% láni á Íslandi en 15,838,435 kr. af 100% láni í Færeyjum

    94 deilingar
    Share 38 Tweet 24
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?