• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Styrkir Neytendasamtökin til að verjast brotum á neytendum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. maí 2022
in Fréttir, Innlent, Neytendur, Viðskipti
A A
0
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt Neytendasamtökunum 13 milljón króna styrk með það að markmiði að efla starf samtakanna vegna stafrænna brota á neytendum. Í kjölfar Covid-19 fjölgaði málum þar sem brotið er á neytendum þegar þeir nýta sér starfræna þjónustu með einhverjum hætti. Munu Neytendasamtökin leggja áherslu á að fræða neytendur um réttindi sín og verður horft sérstaklega til einstaklinga í viðkvæmri stöðu.

Þau verkefni sem Neytendasamtökin eru að undirbúa á þessu sviði eru:

Fræðsla um réttindi og skyldur í netverslun. Netverslun hefur aukist til muna í heimsfaraldrinum og töluvert er um að neytendur þekki ekki rétt
sinn, sérstaklega viðkvæmari hópar samfélagsins. Ráðist verður í verkefni þar sem markmiðið er að fræða neytendur og seljendur um réttindi er lúta að netverslun.

Netsvindl – netöryggi. Samfara aukinni netverslun hafa tilkynningar um netsvindl stóraukist og verða tilraunir óprúttinna aðila sífellt vandaðri. Einstaklingar í viðkvæmri stöðu eru sérlega útsettir fyrir slíku svindli. Ráðist verður í fræðslu og vitundarvakningu um þær gildrur sem verið er að leggja og hvernig sé best að bregðast við.
Njósnaauglýsingar. Fyrirtæki hafa hag af því að safna upplýsingum um fólk til að hægt sé að sníða markaðssetningu að tilteknum hópum. Ráðist verður í fræðslu og vitundarvakningu til að vekja athygli á því hversu miklum persónuupplýsingum er safnað og hversu mikill munur er á því hvað fólk gefur upp á netinu og svo í raunheimum.
Styrkurinn gerir Neytendasamtökunum kleift að þróa og vinna fræðsluefni vegna verkefnanna og bjóða upp á víðtækari stuðning við þá einstaklinga sem þurfa aðstoð vegna stafrænna brota á netinu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra: „Eftir því sem við færum stærri hluta viðskipta og lífs okkar á netið fjölgar tilfellum þar sem brotið er þar á neytendum með einhverjum hætti. Þetta er nýr veruleiki fyrir flestum og oft erfitt að átta sig á hvaða réttindi við höfum, hvaða upplýsingum er safnað um okkur og hvenær verið er að svindla á okkur. Ég er því mjög ánægður með að geta styrkt þetta þarfa verkefni sem Neytendasamstökin eru að ráðast í vegna þess að það skiptir okkur öll máli.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Togarar á strandveiðum

    Togarar á strandveiðum

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    127 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Íslandsbanki: Eru forsendur sölunnar þegar brostnar?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    69 deilingar
    Share 28 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?