01:11 Ökumaður grunaður um hafa valdið umferðaróhappi og akstur undir áhrifum áfengis. Þegar hann fór frá umferðaróhappinu fór aðilinn að angra dyraverði skemmtistaðar í hverfinu og var handtekinn þar fyrir utan.
03:01 Tilkynnt um eld í bifreið. Samkvæmt bókun varð altjón á bifreiðinni.
03:29 Ökumaður stöðvaður og handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og vímuefna.
03:53 Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum. Samkvæmt upplýsingum lögreglu nefbrotnaði mögulega einn aðili í slagsmálunum.
4 ökumenn stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna auk ýmissa minniháttar umferðalagabrota.
05:09 Ökumaður stöðvaður og handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Sá var einnig kærður fyrir of hraðan akstur en ökumaður ók á 129 Km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 80/km/klst.
05:57 Ökumaður stöðvaður og handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.