• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stjórnmálavændið

Stjórnmálavændið

Gústaf Adolf Skúlason, skrifar hjá Þjóðólfi.is

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. maí 2025
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Það er ömurlegt að fylgjast með hnignun íslensks samfélags. Þrátt fyrir sífellt menntaðri þjóð samkvæmt pappírnum, þá hrakar lestrar- og stærðfræðikunnáttu barna í grunnskólum. Breiðholtsskóli með fagurgala á pappír heldur ekki vatni í raun. Þjóðin má þakka fyrir einstaklinga eins og Hermann Austmar faðir stúlku í skólanum, sem óskaði eftir að „náms­matið yrði lagt fyr­ir hóp­inn þar sem hann taldi ör­uggt að nem­end­urn­ir hefðu ekki fengið viðun­andi kennslu vegna of­beld­is­vanda sem hef­ur þrif­ist í skól­an­um.“

Gústaf Adolf Skúlason, skrifar hjá Þjóðólfi.is

Niðurstöður matsins sýna ofmat stjórnenda og kennara skólans miðað við raunverulega kunnáttu nemenda og þannig reynt að hylma yfir raunveruleikann. Ef Hermann Austmar hefði ekki farið sjálfur af stað til að fá fram sannleikann, er óvíst að nokkur hefði gert það. Með sömu úrkynjun menntunar og skóla landsins í dag verður Ísland þriðja heims ríki eftir nokkur misseri. 

Fölsun staðreynda með opinberum yfirlýsingum eins og í Breiðholtsskóla eru ekkert einsdæmi heldur dæmigert fyrir þá tækifærisstefnu sem trónar á Íslandi og hefur gert í áratugi.

Allt er til sölu, ekkert hefur gildi ef ekki er hægt að setja verðmiða á það. Þannig er menntunin orðin annars flokks söluvarningur þar sem árangurinn skiptir ekki lengur neinu máli. Öll stjórnmálastéttin er undirlögð svindlmenningu útrásarvíkinganna forðum sem rændu landsmenn og aðra í mörgum löndum Evrópu.

Uppgjörið við hrunið var að ljúka skuldadæmi fjárglæframanna með lagalegri leið en vitundarhliðin var aldrei gerð upp. Stjórnmálastéttin hefur því miður tekið upp verstu glæfrasiðina og verðlaunar sjálfa sig og einstaklinga sem hafa skaðað þjóðina með opinberum embættum á Alþingi og í utanríkisþjónustunni.

Allt er gert að söluvarningi, menntun, náttúra, tungumál, auðlindir, menning….sjálft Ísland er til sölu. Gleymt er að af aurum verður margur api og bestu hlutirnir fást ekki keyptir eins og raunverulegur kærleikur, góð fjölskyldubönd og gott heimili. Landsmenn þurfa að fara að vakna upp úr menningarroti útrásarvíkinganna og klára dæmið með því að fara að fordæmi Hermanns Austmar og krefjast árangurs af þeim sem eru í stjórn, hvort svo sem það er í grunnskóla, sveitarfélagi eða ríkisstjórn. Örlög íslensku þjóðarinnar verða aðeins söluvarningur á meðan almenningur sefur.

Breiðholtsskóli stendur líka fyrir það vandamál sem ábyrgðarlaus stjórnmálastétt hefur þvingað á landsmenn með niðurlagningu landamæra Íslands og allir boðnir velkomnir til landsins í boði skattgreiðenda. Peningagræðgin er slík að íslensk tunga er í útrýmingarhættu. Þjóðin er orðin að leiguliða í eigin landi og vændiskonur stjórnmálastéttarinnar þeysa á fundi hirðarinnar í Brussel til að selja út það sem eftir er af Íslandi.

Vændið er aðalburðarstoð íslenskrar menningar nútímans. – Gústaf Adolf Skúlason, skrifar hjá Þjóðólfi.is

Vændiskonur á Íslandi í boði ríkisstjórnarinnar

Umræða
Share3Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?