• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Maður borgar enga reikninga með hlutföllum eða meðaltölum“

,,Maður borgar enga reikninga með hlutföllum eða meðaltölum“

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. júní 2023
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Ásta Lóa Þórsdóttir hjá Flokki fólksins skrifaði neðangreinda grein á facebook sem hefur farið eins og eldur í sinu um þjóðfélagið:

Ásta Lóa Þórsdóttir

Þeir á Viðskiptablaðinu eru miklir snillingar 🤦‍♀️ 10% á 100.000 króna laun er 10.000 en 100.000 ofan á milljón. Það er hins vegar alveg rétt hjá þeim að hlutfallið á milli 100.000 og 1.000.000 er það sama og á milli 110.000 og 1.100.000. Þeir eru svaka duglegir strákar að fatta það 👏👏👏

(Sem kennari veit ég að maður á alltaf að hrósa fyrst, ekki síst þeim sem eiga erfitt með skilning, og já, þeir voru rosa duglegir að fatta þetta og fá bæði broskall og stjörnu 🙂⭐️)
Eeeeeennn….
…þeir hafa ekki enn fattað að maður borgar enga reikninga með hlutföllum eða meðaltölum, og að í þessu dæmi fær annar aðilinn 100.000 krónur í sinn hlut en hinn bara 10.000. Geta þeir, á þessu ríkisstyrkta skólablaði, ekki reiknað út hversu margfalt meira annar þeirra fékk en hinn?
Í alvöru, eruð þessir gaurar 10 ára?
Setjum upp dæmi, með lágum og einföldum tölum, sem 10 ára börn gætu reiknað með léttu:
——————–
Dæmi: Jón og Siggi eiga báðir 2 börn. Jón er með 100.000 krónur í tekjur en Siggi með milljón. Hjá báðum kostar heimilisrekstur 90.000 á mánuði. Hvað eiga Jón og Siggi mikið afgang þegar þeir hafa greitt það?
Svar: 10.000 og 910.000.
Tómstundir hvers barns kosta 25.000 á manuði. Hvað eiga þeir mikið í afgang þegar þeir hafa greitt það?
Svar: Siggi á 860.000 en Jón á ennþá 10.000 því hann hefur ekki efni á að senda börnin sín í tómstundir.
Þeir fá báðir 10% launahækkun. A) Er það nóg til að börnin hans Jóns komist í tómstundir? B) Hvað eiga þeir mikinn afgang eftir þessa hækkun?
Svar: A) Nei, börnin hans Jóns komast ekki ennþá í tómstundir, það vantar enn 5.000 upp á að ANNAÐ barnið komist í þær.
B) Siggi á núna 960.000 í afgang, en Jón er komin í mínus, því hann þurfti að fara með annað barnið til læknis og hitt til tannlæknis.
————————
Þetta tilbúna dæmi myndi hvert 10 ára barn ráða við, en ekki svokallaðir „Viðskiptablaðamenn“ sem fengu samtals 50 milljónir í ríkisstyrki á árunum 2021 – 22 🤦‍♀️ Svona rör­sýn­, svo maður tali nú ekki um svona hlutdræg og einhliða blaðamennska, á ekki að finnast á miðli sem ber einhverja SMÁ virðingu fyrir sjálfum sér 🤷‍♀️
Ég bið útgefendur skólablaða afsökunar á likingunni, þau myndu aldrei láta svona frá sér. Skilningur ritstjóra/blaðamanns þeirra er meiri en svo.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    136 deilingar
    Share 54 Tweet 34
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    147 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?