Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, mun bregðast við ákvörðun þjóðhátíðarnefndar af fullum þunga og er þegar farinn að leita réttar síns.
„Þeir létu mig vita í gær að þeir ætluðu að afbóka mig á hátíðina,“ segir Ingólfur Þórarinsson í samtali við fréttastofu Vísis og þar segist Ingó vera mjög ósáttur við ákvörðunina og er þegar farin að leita réttar síns. „Ég er ósáttur við það og ég mun bregðast við þessu af fullum þunga.“ Segir Ingólfur í viðtalinu og má þá reikna með málaferlum gagnvart nefndinni og jafnvel þeim sem dreift hafi sögum um hann opinberlega, og stefnum fyrir dómstólum með tilheyrandi kostnaði en það mun skýrast á næstu dögum.
Ingó sagði í samtali við fréttastofuna á föstudag að ekkert væri til í frásögnunum og sagðist upplifa umræðuna sem árás á sig. „Ég er kominn með nokkra lögfræðinga í málið. Þetta er farið að hafa áhrif atvinnulega og aðallega er þetta leiðinlegt fyrir fólkið sem þekkir mann, að þurfa að standa í þessu. Þetta er orðið svo gróft núna,“ sagði Ingó og sagðist hafa mestar áhyggjur af sínum nánustu í tengslum við umræðuna að þvi er fram kemur í viðtalinu. Því má slá föstu að einhverjir aðilar eigi yfir höfði sér meiðyrðamál vegna skrifa um Ingó á netinu undanfarna daga.