• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Útlit fyrir bitlausar suðlægar áttir og vætu hér og þar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. ágúst 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Hugleiðingar veðurfræðings

Veðrið sem varað var við í nótt fer að ganga niður með morginum. Vindur blæs nokkuð hraustlega úr austri í fyrstu, einkum SA-lands, en snýst smám saman í heldur hægari suðlægar áttir. Þó rignir áfram nokkuð hressilega um austanvert landið fram undir hádegi, annars má búast við sæmilega hóflegri rigningu með köflum í flestum landshlutum í dag, síst þó um landið norðaustanvert. Seinnipartinn hlýnar norðan heiða þar sem búist er við að hiti nái um 16 stigum. Sunnanlands verður áfram heldur svalt. Næstu daga er útlit fyrir bitlausar suðlægar áttir og vætu hér og þar, en þurrt og bjart með köflum á Norðausturlandi og nokkuð hlýtt í veðri þar.
Veðuryfirlit
Yfir Vestmannaeyjum er 979 mb lægð sem þokast NV. 1500 km SV af Reykjanesi er vaxandi 1001 mb lægð á leið NA.
Veðurhorfur á landinu
Austan og norðaustan 8-15 og rigning, en heldur hvassari við suðausturströndina og talsverð úrkoma þar fram eftir morgni. Snýst í sunnan 3-10 og dregur úr úrkomu eftir hádegi, fyrst syðst, og léttir til um norðaustanvert landið seinnipartinn. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast norðaustanlands. Sunnan 8-13 m/s á morgun en heldur hægari um austanvert landið. Dálítil væta með köflum og hiti 8 til 12 stig. Bjart með köflum norðaustantil og hiti á bilinu 12 til 17 stig. Spá gerð: 05.08.2020 07:40. Gildir til: 07.08.2020 00:00.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Austan 5-10 m/s, en snýst í sunnan 5-10 eftir hádegi. Dálítil rigning eða súld með köflum og hiti 9 til 13 stig. Hæg austlæg átt og úrkomulítið annað kvöld.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Vestlæg átt 3-10 m/s. Víða dálítil væta en styttir upp og léttir til um austanvert landið síðdegis. Hiti víða 8 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á laugardag:
Suðvestan 3-8 og skúrir vestantil, annars bjart með köflum. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Á sunnudag:
Sunnan átt, víða 8-13 m/s. Víða rigning og hiti 9 til 14 stig, en úrkomulítið norðaustantil og hiti að 18 stigum.
Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir suðlægar áttir með rigningu sunnan- og vestantil, annars bjart með köflum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands.
Spá gerð: 05.08.2020 08:10. Gildir til: 12.08.2020 12:00.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?