Heilbrigðisráðuneytið hefur gert breytingu á reglugerð nr. 747/2021 þar sem aðgengi að sóttvarnahúsum verður takmarkað. Undanfarið hefur verið mikið álag á sóttvarnahús en með breytingunni verður áhersla lögð á að nýta húsin fyrst og fremst fyrir fólk sem þarf á einangrun að halda.
Eftir sem áður getur sóttvarnalæknir í undantekningartilvikum ákveðið að einstaklingur sem sætir sóttkví skuli dveljast á sóttvarnahúsi, svo sem ef viðkomandi hefur ekki tök á að einangra sig í húsnæði á eigin vegum eða verða sér úti um annan samastað í þeim tilgangi, eða ef sýnt þykir að hann muni ekki hlíta reglum um sóttkví.
Reglugerðarbreytingin tekur gildi 7. ágúst 2021.
Sjá nánar hér: Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 747/2021 um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19.
Umræða