• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Opnað fyrir umsóknir um framlög vegna verslunar í strjálbýli

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. september 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru til verslana í strjálbýli á grundvelli aðgerðar A.9 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Markmið með aðgerðinni er að styðja verslun í skilgreindu strjálbýli fjarri stórum þjónustukjörnum þar sem verslun hefur átt erfitt uppdráttar.
Framlögin geta nýst til að bæta rekstur verslana og skjóta frekari stoðum undir hann, m.a. með samspili við aðra þjónustu, breyttri uppsetningu í verslunum og bættri aðkomu. Umsóknarfrestur er til miðnættis 16. október 2019.
Verslunarrekendur eða þeir sem hyggja á verslunarrekstur á skilgreindum svæðum geta sótt um þau framlög sem auglýst eru. Verslanirnar þurfa að vera í a.m.k. 150 km akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu, 75 km akstursfjarlægð frá Akureyri og 40 km akstursfjarlægð frá byggðakjörnum með yfir 1.000 íbúa, eða í Grímsey og Hrísey. Þriggja manna valnefnd gerir tillögur til ráðherra um veitingu framlaga á grundvelli úthlutunarskilmála. Byggðastofnun annast umsýslu umsókna um framlög fyrir hönd ráðuneytisins. Við mat á umsóknum verður meðal annars stuðst við rekstraráætlun fyrir árið 2020, ársreikninga síðustu tveggja ára og fyrirhugaða starfsemi.
Framangreind úthlutun byggir á reglum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um úthlutun á framlögum sem veitt eru til verkefna á grundvelli byggðaáætlunar. Er þeim ætlað að tryggja að gætt sé jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða við úthlutun og umsýslu styrkja og framlaga úr byggðaáætlun.

  • Auglýsing um framlög vegna verslunar í strjálbýli
  • Rafrænt umsóknareyðublað um framlög vegna verslunar í strjálbýli
  • Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024
  • Reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024
  • Frétt um úthlutun vegna verslana í strjálbýli á árinu 2018

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?