• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Forstjóri Landspítala lætur af störfum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. október 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Heilbrigðisráðherra hefur orðið við ósk Páls Matthíassonar forstjóra Landspítala um að hann láti af starfi sínu. Páll lætur af embætti frá og með 11. október næstkomandi. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala, mun að  beiðni ráðherra taka við stöðu forstjóra tímabundið til áramóta, þar til skipað hefur verið í embættið að nýju. Páll mun verða nýjum forstjóra innan handar næstu mánuði.

Páll hefur gegnt starfi forstjóra Landspítala í átta ár en þar á undan var hann í rúm fjögur ár framkvæmdastjóri geðsviðs spítalans. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra þakkar Páli samstarfið: „Landspítali er risavaxinn vinnustaður þar sem fengist er við öll flóknustu verkefnin sem á reynir í heilbrigðisþjónustu við landsmenn. Það er gríðarmikið verkefni að stjórna þessum spítala við venjulegar aðstæður, hvað þá við einhverjar erfiðustu aðstæður sem hugsast getur eins og í heimsfaraldri“ segir ráðherra.

Páll segir þakklæti sér efst í huga á þessum tímamótum, gagnvart starfsfólki spítalans og fjölmörgum samstarfsstofnunum: „Spítalinn hefur aldrei verið öflugri en nú með skýra heilbrigðisstefnu og reynsluna af baráttunni við heimsfaraldur í farteskinu. Framundan eru áskoranir á næstu árum, samfara gríðarlegri uppbyggingu sem þarf að haldast í hendur við trygga mönnun. Á þessum tímapunkti tel ég því viðeigandi að nýr forstjóri taki við stjórn spítalans,“ segir Páll Matthíasson.

Guðlaug Rakel JónsdóttirGuðlaug Rakel Guðjónsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri meðferðarsviðs síðan haustið 2019. Guðlaug Rakel er fædd árið 1961. Hún brautskráðist sem hjúkrunarfræðingur árið 1986 og starfaði sem slíkur í 10 ár. Í kjölfarið sinnti hún ýmsum stjórnunarstörfum, meðal annars í lyfjageiranum, en einnig sem hjúkrunarforstjóri á St. Jósefsspítala og sviðsstjóri hjúkrunar á Landspítala.

Guðlaug Rakel hefur lokið MBA-gráðu og bætt við sig þekkingu í lýðheilsuvísindum. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra bráðasviðs við stofnun þess árið 2009 og gegndi síðan starfi framkvæmdastjóra flæðisviðs frá 2014 til 2019.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    Nýtt flugfélag í Keflavík

    76 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Eftirlýst kona handtekin

    98 deilingar
    Share 39 Tweet 25
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?