Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að því að koma munum, sem lagt var hald á við húsleit í Mosfellsbæ í gær, aftur í réttar hendur og er viðbúið að það taki nokkurn tíma.
Jafnframt eru þeir sem hafa orðið fyrir innbroti/þjófnaði á umræddu svæði undanfarið, OG HAFA EKKI ÁÐUR TILKYNNT ÞAÐ TIL LÖGREGLUNNAR, beðnir um að hafa samband með tölvupósti á netfangið stella.mjoll@lrh.is Í þeim pósti þurfa að koma fram upplýsingar um brotavettvang, tímasetningu og hverju var stolið.
Fólk er beðið um að sýna biðlund á meðan unnið verður úr þessum upplýsingum.
https://gamli.frettatiminn.is/handtaka-og-husleitir-i-mosfellsbae/
Umræða