Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar, sem samþykkt var í bæjarstjórn í gær, gerir ráð fyrir 1.725 milljóna króna afgangi á A- og B-hluta sveitarfélagsins á næsta ári. Rekstur A-hluta verður jákvæður um 861 milljón króna á árinu 2024 samkvæmt áætlun.
Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 5,4% af heildartekjum eða 2.619 milljónir króna. Fjárhagsleg staða Hafnarfjarðarbæjar er góð og er áætlað að skuldaviðmið sveitarfélagsins haldi áfram að lækka og verði komið niður í um 86% í árslok 2024, sem er vel undir 150% skuldaviðmiði samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Útsvarsprósenta verður óbreytt og álagningarprósenta fasteignaskatts á íbúða- og atvinnuhúsnæði lækkuð úr 0,223% í 0,217% til þess að koma til móts við hækkun fasteignamats. Þá verður álagningarprósenta fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði lækkuð úr 1,400% í 1,387%.
,,Áfram er lögð áhersla á að rekstur Hafnarfjarðarbæjar sé agaður og virðing borin fyrir fjármunum skattgreiðenda. Góður rekstur undanfarin ár hjálpar til nú þegar efnahagsaðstæður í þjóðfélaginu eru krefjandi,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri. ,,Við gerum ráð fyrir ríflegum afgangi af rekstrinum og viljum sjá skuldahlutföll bæjarins halda áfram að lækka. Í því skyni er mikilvægt að halda lántökum í lágmarki. Á sama tíma er lögð áhersla á að efla enn frekar þjónustu við bæjarbúa og mikilli innviðauppbyggingu haldið áfram.“
Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með áætluð heildarútgjöld sem nema um 43,0 milljörðum króna og áætlaðan launakostnað upp á 24,7 milljarða króna. Útkomuspá þessa árs gerir ráð fyrir 680 milljón króna afgangi árið 2023.
Helstu tölur úr fjárhagsáætlun 2024
- Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta jákvæð um 1.725 milljónir króna
- Rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 861 milljón króna
- Skuldaviðmið áætlað um 86% í árslok 2024
- Áætlað veltufé frá rekstri A- og B-hluta 2.619 milljónir króna eða 5,4% af heildartekjum
- Útsvarsprósenta óbreytt eða 14,7%
- Álagningarprósenta fasteignaskatts á íbúða- og atvinnuhúsnæði lækkuð til þess að koma til móts við hækkun fasteignamats
- Gert er ráð fyrir almennri hækkun gjaldskrár um 9,9% til þess að mæta verðlags- og launahækkunum umfram áætlanir þessa árs og væntanlegri verðbólgu næsta árs. Komið getur til endurskoðunar á gjaldskrám gefi niðurstöður kjarasamninga tilefni til þess. Gjaldskrá vegna sorphirðu er almennt að hækka um 9,9% en breytt samsetning sorpíláta hjá íbúum getur dregið talsvert úr þeirri hækkun
- Frístundastyrkir til ungmenna hækka úr 54.000 í 57.000 krónur
- Áætlaðar fjárfestingar nema tæplega 8,5 milljörðum króna
Nokkrar helstu fjárfestingar í nýrri fjárhagsáætlun
Fjárheimild til framkvæmda fyrir árið 2024 er um 8,5 milljarðar króna. Í nýrri fjárhagsáætlun er lögð áhersla á forgangsröðun í þágu grunnþjónustu, svo sem umhverfismála, samgangna, íþróttaaðstöðu, húsnæðis og fráveitumála.
- Frágangur á nýbyggingarsvæðum víðs vegar um bæinn
- Endurgerð gatnamóta, gangstétta og gönguleiða og efling hjólreiðaleiða
- Endurnýjun eldri leiksvæða
- Fjölgun á grenndarstöðvum
- Áhersla á aukinn gróður í hverfum bæjarins
- Endurbætur og viðhald á skólahúsnæði og -lóðum
- Hafinn undirbúningur að nýjum leik- og grunnskóla í Hamranesi
- Endurbætur á aðstöðu Suðurbæjarlaugar og undirbúningur að hönnun á útisvæði við Ásvallalaug
- Bygging knatthúss á félagssvæði Hauka sem áætlað er að taka í notkun í lok árs 2024
- Bygging reiðhallar á félagssvæði hestamannafélagsins Sörla
- Lokið við gerð hybrid-grasvallar Fimleikafélags Hafnarfjarðar
- Endurbætur aðstöðu í íþróttahúsinu við Strandgötu
Þá er áfram unnið að undirbúningi ýmissa stórra verkefna á vegum bæjarins, svo sem þróun miðbæjar og Flensborgarhafnar, fyrirhuguðum flutningi Tækniskólans á hafnarsvæðið, þróun Krýsuvíkursvæðisins og mögulega auknum hafnarumsvifum í Straumsvík í tengslum við Coda Terminal verkefnið.
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar var lögð fram til seinni umræðu og samþykkt á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar mánudaginn 4. desember 2023. Fjárhagsáætlunin nær til næsta árs auk þriggja ára áætlunar fyrir árin 2025-2027.