• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 19. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Beinir styrkir í stað skattaívilnana vegna orkuskipta

Ódýr og örugg orka til heimila kemur orkuskorti ekkert við

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. janúar 2024
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Stórnotendur raforku koma nú fram í fjölmiðlum og mótmæla nauðsynlegu frumvarpi um forgang heimilanna að öruggri raforku á hóflegu verði.

Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar
Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar skrifar
Stórnotendur raforku koma nú fram í fjölmiðlum og mótmæla nauðsynlegu frumvarpi um forgang heimilanna að öruggri raforku á hóflegu verði. Tala um afturför, miðstýringu, brot á samkeppnislögum og neyðarástand vegna orkuskorts. Þessi orkufreku fyrirtæki eru á móti því að tryggja heimilum og litlum fyrirtækjum brot af allri raforkunni af sameiginlegri orkuauðlind í eigu þjóðarinnar.

Stórnotendur nýta nú 80 prósent orkunnar. Það er mikið álag á náttúruna. Heimilin nota fimm prósent. Þessar kvartanir hafa ekkert með skort að gera. Það er verið að kalla eftir meðvitaðri ákvörðun um að selja hæstbjóðanda alla raforkuna okkar, alltaf. Við þetta á ekki að una og við þetta geta ekki aðrir en stórnotendur keppt. Náttúran má sín einskis í þessum aðstæðum frekar en fólkið í landinu.

Orkuöryggi heimila og lítilla fyrirtækja í húfi

Aðgangur að raforku og heitu vatni á sanngjörnu verði er ennþá grundvöllur velsældar okkar og hann ætti að tryggja um ókomna tíð. Því sannarlega er eftirspurnin endalaus. Orkuöryggi heimila og lítilla fyrirtækja gæti horfið á örskotsstundu nái sjónarmið stórnotenda fram að ganga. Um það eru slæm dæmi í nágrannalöndum, til dæmis Noregi þar sem orkuverð til heimilanna sveiflast upp í hæstu hæðir, eftir lögmálum markaðarins, þótt orkuframleiðsla sé gríðarleg. Þetta getur líka gerst hér.

Stórnotendur mótmæla  

Samtökin og fyrirtækin sem mótmæla nú frumvarpi til laga um raforkuöryggi heimila eru Alcoa Fjarðarál, Norðurál, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins, Samál, Samtök iðnaðarins, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, HS orka, Veitur og Orka náttúrunnar.

Með því að leggjast gegn orkuöryggi heimilanna setja þau eigin hagnað ofar almannahagsmunum. Landvernd tekur heilshugar undir með forstjóra Landsvirkjunar sem segir að í litlu og lokuðu raforkukerfi, eins og á Íslandi, virki markaðslögmál ekki vel. Þegar skortur sé á orku geti verðið margfaldast.

Bráðnauðsynlegt frumvarp orku, umhverfis og auðlindaráðherra, sem tryggir heimilum raforku á hóflegu verði ætti að vera óumdeilt og það kemur orkuskorti ekkert við, þótt ýmsir þingmenn velji að tengja það við meint „neyðarástand“ gagnavera og stóriðju. Lög um trygga og ódýra orku til heimilanna eiga ekki að vera tímabundin, heldur varanleg. Hvernig sem árar í orkumálum landsins, að mati þeirra sem vilja setja bæði fólkið í landinu og náttúruna sjálfa á markaðstorg stórnotenda.

Stjórnvöldum ber að standa vörð um hagsmuni almennings

Íslendingar lifa ekki við hagstætt veðurfar, en hér er gott að búa við öruggan hita og rafmagn, þótt kaldir vindar næði. Orkan er sameign þjóðarinnar sem á að nýtast varlega í þágu þjóðar og náttúru. Raforkukostnaður er engu að síður stór liður í útgjöldum margra heimila í landinu og ekki er þar á bætandi. Stjórnvöldum ber að standa vörð um náttúru og almenning og forgangsraða í þágu almennings, orkuskipta og starfsemi sem ekki ryksugar upp alla orku sem mögulegt er að framleiða í landinu.

Goðafoss í Skjálfandafljóti.

Orkuskiptahermir

Skoðaðu orkuskiptahermi Landverndar. Orkuskiptin geta farið fram án þess að eyðileggja einstaka íslenska náttúru.

Opna…

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    125 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Svartaþoka yfir miðborginni – Þykkur þokubakki við ströndina

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    138 deilingar
    Share 55 Tweet 35
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?