Björn Ingi Hrafnsson sagði frá því á facebook að Skattrannsóknarstjóri hefði sent sér formlega staðfestingu á að rannsókn á bókhaldi fyrir árin 2014 til 2017 væri lokið og að engin ástæða væri til þess að skoða það frekar. Færsla Björns Inga er eftirfarandi:
,,Fyrir fjögurra barna fjölskylduföður er ekki einfalt mál að sæta kæru og hafa réttarstöðu sakbornings frammi fyrir alþjóð. Hvað þá að sæta kyrrsetningu allra sinna eigna og geta sig hvergi hrært.
Þá er gott að eiga góða að og trúa á mátt bænarinnar og að réttlætið muni sigra og sannleikurinn koma í ljós að lokum. Það gerðist í gær og ég er fullur þakklætis fyrir það.
Ég mun auðvitað skoða næstu skref með lögmanni mínum, enda hafa undanfarin misseri ekki verið auðveld fyrir mig og tjónið er mikið.
En allt er gott sem endar vel. Dag er farið að lengja og landið er að rísa.“ Segir Björn Ingi.
Þá hefur RÚV eftir Sveini Andri Sveinssyni, sem er lögmaður Björns Inga Hrafnssonar, að það liggi í augum uppi að ríkið verði krafið bóta vegna rannsóknar skattrannsóknarstjóra á málum Björns Inga. Rannsókn hefur verið hætt á skattskilum og bókhaldi hans en hann hafði verið grunaður um skattaundanskot vegna reksturs DV.
Spurður hvort það standi til að fara í mál við ríkið vegna rannsóknarinnar segir Sveinn Andri að það liggi í augum uppi, enda hafi kyrrsetning á eignum Björns Inga valdið honum miklu tjóni en Tollstjóri óskaði eftir kyrrsetningunni í tengslum við rannsókn skattrannsóknarstjóra.