Ef teknar eru saman tilkynningar lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu frá fyrsta til sjötta mars um hraðakstur á Sæbrautinni, þá er um að ræða 551 aðila sem að hafa ekið á sex dögum yfir leyfilegum hámarkshraða. 1-4.mars 366 myndaðir, 4 og 5.mars 86 og 99 þánn 5. og 6. mars.
Brot 99 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 5. mars til miðvikudagsins 6. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á einum sólarhring fóru 8.747 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 112. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 86 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 4. mars til þriðjudagsins 5. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tuttugu klukkustundum fóru 6.476 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 366 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 1. mars til mánudagsins 4. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur sólarhringum fóru 21.287 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 103.
Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.