• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 6. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Átak í eftirliti með grásleppukörlum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. mars 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Grásleppuvertíðin er framundan og í gegnum tíðina hafa þessar veiðar verið stundaðar af svokölluðum grásleppukörlum á litlum trillum sem og hobbý trillukörlum. Vegna þess að það hefur aldrei verið á vísan að róa á grásleppuveiðum. Bæði varðandi veiðar, veðurfar og síðast en alls ekki síst verð á afurðinni sem hefur í gegnum áratugina verið mjög sveiflukennt. Sum árin hafa grásleppuveiðimenn setið uppi með allar sínar tunnur óseldar eftir vertíðina, vegna lítillar eftirspurnar í harðri samkeppni á heimsmarkaði um verð. Í nýrri yfirlýsingu matvælaráðherra kemur m.a. fram að í ljós hafi komið að skráningu á meðafla, auk sjávarspendýra og fugla, hafi verið ábótavant.

Samkvæmt yfirlýsingu frá Svandísi Svavarsdóttr matvælaráðherra þá hefur hún ,,beint þeim tilmælum til Fiskistofu að átak verði gert í eftirliti með grásleppuveiðum á komandi vertíð en veiðar á grásleppu hefjast eftir um mánuð.“ Jafnframt segir hún:
,,Í átakinu verður áhersla lögð á bætta skráningu meðafla sem er mikilvæg fyrir vottun útfluttra íslenskra sjávarfurða. Áður hefur verið farið í sérstakt eftirlit með veiðunum þar sem í ljós hefur komið að skráningu á meðafla, auk sjávarspendýra og fugla, hefur verið ábótavant.
Fyrir innfluttar sjávarafurðir eru gerðar kröfur af hálfu bandarískra stjórnvalda og alþjóðlegra vottunarfyrirtækja um skráningu meðafla. Bent hefur verið á í úttektum vottunarfyrirtækja að án aðgerða gætu íslenskar sjávarafurðir veiddar á línu og í net, líkt og grásleppuhrogn, misst vottunarskírteini á erlendum mörkuðum.
Á síðasta ári framlengdu bandarísk stjórnvöld undanþágu til 31. desember 2023 frá innleiðingu reglna um vernd sjávarspendýra og fugla við fiskveiðar og fiskeldi. Reglurnar gilda um innflutning til Bandaríkjanna á sjávarafurðum úr fiskveiðum þar sem sjávarspendýr eru meðafli.“
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    90 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    117 deilingar
    Share 47 Tweet 29
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    52 deilingar
    Share 37 Tweet 6
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?