• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 22. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skemmtileg og markviss uppbygging í ferðaþjónustu á Þórshöfn

Skemmtileg og markviss uppbygging í ferðaþjónustu á Þórshöfn

Kynning

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. mars 2024
in Afþreying, Ferðaþjónusta, Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Skemmtileg og markviss uppbygging hefur verið í ferðaþjónustu á Þórshöfn, þau Karen Rut Konráðsdóttir sem hefur rekið Gistiheimilið Lyngholt ásamt Ólafi Birgi Vigfússyni frá árinu 1999. Hafa ekki setið auðum höndum síðan þá og gaman að sjá hversu drífandi þau hafa verið frá því að reksturinn hófst. Þá má geta þess að þau tóku við rekstri ENN 1 SKÁLANS Í desember 2018.

Ferðaþjónusta hefur undanfarin ár verið vaxandi atvinnugrein og fyrir þá sem leggja leið sína til Þórshafnar, er bæði boðið upp á góða gistingu og veitingar. Fallegt umhverfi á staðnum og nálægð við náttúruna er það sem ferðamenn þrá.

Í nágrenni Þórshafnar er svo ýmislegt hægt að skoða og upplifa. Nokkrar skemmtilegar gönguleiðir (merktar) eru í nágrenninu, bæði á Langanesi og í Þistilfirði svo eitthvað sé nefnt. En hér að neðan er fjallað um bæði náttúruskoðun sem og þá aðstöðu sem ferðamönnum er boðið upp á á Þórshöfn.

Þetta byrjaði allt í desember 1998 þegar við; Karen Rut Konráðsdóttir og Ólafur Birgir Vigfússon festum kaup á íbúðarhúsinu að Langanesvegi 12, kallað Lyngholt. Húsið var á árum áður í eigu fjölskyldu Karenar, en foreldar móður hennar byggðu það árið 1959. Karen og Ólafur búa að Syðra-Álandi í Þistilfirði þar sem þau reka sauðfjárbú og eiga þau 3 dætur og starfa tvær þeirra við reksturinn með einum eða öðrum hætti.

Nú rúmum 20 árum síðar hefur reksturinn aldeilis vafið upp á sig og þá aðallega síðustu árin. Í heildina er komið gistirými fyrir 30 manns. Gistihúsin eru orðin 5 talsins og er þá nýjasta fjárfestingin talin með, íbúðarhúsið að Langanesvegi 10, kallað Bjarg. Yfir sumartímann eru starfsmenn í kringum 10 talsins og 5-6 yfir vetrartímann.

Veitingahlutinn fer stækkandi en Lyngholt hefur undanfarin 10 ár eða svo séð um rekstur skólamötuneytisins fyrir bæði grunn- og leikskóla á Þórshöfn og er þar að öllu jöfnu eldað fyrir ca 80 börn + kennara í hádeginu.

Í desember 2018 tók Lyngholt svo við rekstri söluskála N1 á Þórshöfn en þar er framreiddur heimilismatur í hádeginu alla virka daga og skálinn hefur tekið að sér veitingasölu á hinum ýmsu viðburðum. Í skálanum er grillið opið allan daginn alla daga.

Aðeins um húsin:

LYNGHOLT er á tveimur hæðum og þar eru 6 svefnherbergi, mismunandi að stærð og útliti, samtals með gistirými fyrir 12 manns. Gestir hafa aðgang að eldhúsi, stofu og þvottahúsi, þráðlaust internet og sjónvarp á öllum herbergjum. Herbergin deilda þremur snyrtingum með sturtu.
Gerðar hafa verið miklar endurbætur á húsnæðinu undanfarin ár og má segja að það sé nú orðið full uppgert.

HELLIR er nýjasta og án efa glæsilegasta gistirýmið. Húsið er staðsett á milli Lyngholts og Bjargs, það er 27m2 á stærð og er tilvalið fyrir par að dvelja í. Þar er 160cm rúm,  eldhúskrókur með því helsta sem þarf til eldamennsku og rúmgóð snyrting með sturtu. Húsið er í skammtímaleigu yfir sumarið en til greina kemur að leigja húsið í langtímaleigu yfir vetrartímann, hafið samband fyrir frekari upplýsingar.

ÞÓRSHAMAR
  er tveggja hæða lítið og krúttlegt hús að Fjarðarvegi 12 við sjóinn með gistirými fyrir allt að 4 manns, tvö tveggja manna svefnherbergi á efri hæðinni. Í húsinu er fullbúið eldhús, baðherbergi með þvottavél, garðhúsgögn og grill á veröndinni og úr sólstofunni er einstakt útsýni yfir hafnarsvæðið á Þórshöfn.

KLETTUR (Löghæð) var tekið í notkun 2013, það er gistirými á annarri hæð að Eyrarvegi 2 á Þórshöfn. Þar eru 6 herbergi eða samtals rúm fyrir 10 manns, 2 snyrtingar og þvottahús, sjónvarp í setustofu og á öllum herbergjum, þráðlaust internet og góð eldunaraðstaða. Þetta hús er ekki bókanlegt á síðunni, herbergin þar eru að mestu leiti í langtímaleigu.

BJARG er svo fimmta gistihúsið en það verður vonandi tekið í notkun sumarið 2022. Þar verða fjórar íbúðir í svipuðum stíl og Hellir, s.s. hjónarúm, eldhúskrókur, baðherbergi, sjónvarp og wifi.

Lyngholt Gistiheimili

Langanesvegur 12, Þórshöfn
Sími: 897 5064
Vefpóstur: lyngholt@lyngholt.is

ENN 1 SKÁLINN

  • Lyngholt tók við rekstri ENN 1 SKÁLANS Í desember 2018.

    OLÍUVÖRUR – VERKFÆRI – MÁLNINGAVÖRUR – LEIKFÖNG – SÆLGÆTI
    – Hádegishlaðborð alla virka daga þar sem venjulegur heimilismatur er áberandi.
    – Fjölbreyttur grillmatseðill, grillið er opið kl. 11.30 – 20.30 alla daga.
    – Heimabakað rúgbrauð er reglulega á boðstólnum (fylgist með á facebook)
    – Á sumrin bjóðum við upp á morgunverðarhlaðborð fyrir gesti Lyngholt ásamt gestum og gangandi.

Í nágrenni Þórshafnar er ýmislegt hægt að skoða og upplifa. Nokkrar skemmtilegar gönguleiðir (merktar) eru í nágrenninu, bæði á Langanesi og í Þistilfirði.

Langanes teygist næstum 40 km út í hafið til norðausturs. Á nesinu skiptast á mýrar, holt og melar. Allgrösugt er þar víða og sauðlönd góð. Við Langanes hafa verið gjöful fiskimið frá fornu fari og fiskveiðar stundaðar af krafti. Þar er fjölbreytt fuglalíf. Mikil hlunnindi hafa þar löngum verið af reka, æðarvarpi og bjargfuglatekju. Sjaldgæfar jurtir vaxa á Langanesi svo sem flétta sem kallast klettakróða. Undir Skoruvíkurbjargi er klettadrangur sem heitir Stórikarl. Þar er mesta súluvarp á Norðurlandi og einnig verpa þar margar aðrar fuglategundir t.d. langvía, ryta og fýll.

Sauðaneshús ættu allir að heimsækja, þar er gamli tíminn alls ráðandi og margt fróðlegt að skoða. Ótal gamlir munir og myndir frá svæðinu. Húsið er eingöngu opið yfir sumartímann og þar er boðið upp á léttar veitingar.
Nánari upplýsingar um Sauðaneshúsið er að finna t.d. á Facebook (slá inn Sauðaneshús í leit)
Heimasíða fyrir húsið er í vinnslu.

Rauðanes í Þistilfirði er falleg og sérstæð náttúruperla. Um nesið er merkt gönguleið sem er um 7 km, liggur í hring og er auðfarin. Á nesinu er lyngmór allsráðandi en einnig er þar nokkurt graslendi.
Í byrjun gönguleiðarinnar er gengið fram á Háabjarg sem er um 60 metra hátt og í því sést hvernig berglögin hafa hlaðist hvert ofan á annað í aldanna rás.  Útsýni af nesinu er mjög víðfeðmt.

Á www.lnb.is og www.nordurland.is er að finna nánari upplýsingar um svæðið, samgöngur og þjónustu.

Umræða
Share6Tweet4
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    149 deilingar
    Share 60 Tweet 37
  • Líkamsárás í Úlfarsárdal

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fjársvik: Selur mörgum sama gáminn sem ekki er til

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?