• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Miðvikudagur, 7. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Landhelgisgæslan tekur við formennsku í Arctic Coast Guard Forum

ritstjorn by ritstjorn
6. apríl 2019
in Erlent, Fréttir
0
Share on FacebookShare on Twitter

Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir brýnt að viðhalda góðum tengslum við standgæslustofnanir annarra norðurskautsríkja.

Landhelgisgæsla Íslands tók við formennsku í Arctic Coast Guard Forum, samtökum strandgæslustofnana á norðurslóðum, til næstu tveggja ára. Um er að ræða samráðsvettvang átta strandgæslustofnana en finnska strandgæslan hefur farið með formennsku í ráðinu undanfarin tvö ár.
Georg Kr Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, veitti sérstökum platta viðtöku við hátíðlega athöfn í Turku og áréttaði mikilvægi samstarfs stofnananna á norðurslóðum. Hann hrósaði finnsku strandgæslunni fyrir vel unnin störf á undanförnum árum.
Á meðan Landhelgisgæslan gegnir formennsku verður sértök áhersla lögð á að efla samstarf ríkjanna átta enn frekar þegar kemur að leit og björgun auk þess sem mengunarvarnir og umhverfismál verða sett á oddinn. Þá verður umfangsmikil æfing haldin á Íslandi á vormánuðum 2021.
Undanfarna daga hafa sérfræðingar norðurskautsríkjanna átta fundað um helstu áskoranir á svæðinu auk þess sem æfingin Polaris 2019 fór fram á þriðjudag. Þar voru æfð viðbrögð við neyðarástandi um borð í skemmtiferðaskipi undan ströndum Finnlands. TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, tók þátt auk þess sem starfsmenn stofnunarinnar voru í æfingarstjórn í samhæfingarstöð finnsku strandgæslunnar.
Strandgæslustofnanir átta ríkja, Bandaríkjanna, Danmerkur, Finnlands, Íslands, Kanada, Noregs, Rússlands og Svíþjóðar, mynda samráðsvettvanginn en þjóðirnar undirrituðu yfirlýsingu um áframhaldandi samstarf á fundi forsvarsmanna stofnananna í Turku í Finnlandi í dag.
IMG_1337_1554368634454Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, undirritar yfirlýsinguna fyrir hönd stofnunarinnar.
IMG_1328Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, flutti ávarp áður en Landhelgisgæslan tók við formennsku í ráðinu.
IMG_1318Átta strandgæslustofnanir mynda samráðsvettvanginn.
IMG_1325Landhelgisgæslan mun gegna formennsku næstu tvö árin.
IMG_1316Auðunn Kristinsson fór yfir aðgerðaáætlun Landhelgisgæslunnar næstu tvö árin.
IMG_1321Snorre Greil, Georg Kr. Lárusson og Auðunn Kristinsson tóku þátt í umræðum í Turku í dag.
IMG_1327Georg Kr. Lárusson flytur ávarpið.
IMG_2223Áhöfnin á TF-SIF tók þátt í æfingunni.
IMG_2211TF-SIF á flugvellinum í Turku.
IMG_1249Auðunn Kristinsson og Einar H. Valsson tóku þátt í æfingarstjórn í samhæfingarstöð finnsku strandgæslunnar.

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Líkfundurinn við Borgarnes

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Árni Johnsen er látinn

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Viltu fá útborgað í evrum?

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?