Enginn var með allar fimm tölurnar réttar að þessu sinni og verður 1. vinningur því fjórfaldur í næstu viku. Þrír skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver rúmlega 156 þúsund krónur í sinn hlut.
Tveir miðanna eru í áskrift en sá þriðji var keyptur í Doddagrilli í Garði. Einn var með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og fær hann 100 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur hjá Bifreiðastöð Oddeyrar á Akureyri.
Umræða