Vann tæpar 80 milljónir – ætlar að kaupa sér rafmagnsbíl
Það var bjart yfir vinningshafa sexfalda Lottópottsins sem kom í Getspá í dag til að ganga frá sínum málum. Vinningurinn var verulega vænn, tæpar 79,5 skattfrjálsar milljónir en miðann hafði hann keypt hjá N1 við Bíldshöfða.
Vinningshafinn er Reykvíkingur sem spilar nokkuð reglulega í lottóinu og notar yfirleitt sömu tölurnar. Á undanförnum misserum hefur hann fengið nokkra þúsundkalla á þessar tölur en núna var komið að þeim stóra.
Hann er ekki búinn að taka ákvörðun hvað gera skal við vinninginn og ætlar að þiggja ráðgjöf sem Getspá býður vinningshöfum. Hann er þó viss um að hann ætlar að láta verða að því að kaupa sér góðan rafmagnsbíl.
Íslensk getspá óskar vinningshafanum til hamingju og óskar honum velfarnaðar.