Þann 1. maí var lögreglunni tilkynnt um að söfnunarkassi áfastur búningsaðstöðunni við pollinn á Tálknafirði hafi verið brotin upp og úr honum stolið peningum sem þar voru. Um er að ræða kassa sem hefur að geyma frjáls framlög þeirra sem njóta baðaðstöðunnar utanvert í firðinum.
Þann 5. maí var lögreglunni tilkynnt um að tvö afturljósker hafi verið brotin á malarvagni sem stóð á Suðurtanga á Ísafirði. Ekki er vitað hvenær skemmdarverkið var framið.
Lögreglan hvetur þá sem kunna að búa yfir upplýsingum um þessi tvö atvik að hafa samband í síma 444 0400 eða í gegnum facebooksíðu lögreglunnar.
Þann 1. maí varð óhapp í Bíldudalshöfn er flutningaskip rakst utan í annað skip sem var í höfninni. Tjón hlaust af atvikinu en skipin þó ekki óhaffær.
Lögreglan fjarlægði og tók úr umferð þrjú ökutæki sem ekki höfðu verið færð til lögbundinnar skoðunar. Ökumenn og eigendur ökutækja eru hvattir til að tryggja að þessir þættir séu í góðu lagi og í samræmi við lög og reglur.
Þrir ökumenn voru kærðir fyrir að nota síma/snjalltæki meðan á akstri stóð, án þess að nota handfrjálsan búnað.
Lögreglan hafði afskipti af einum ökumanni sem er á svk. próftökuheimild, þ.e.a.s. hafði sótt kennslutíma hjá ökukennara og fengið leyfi til æfingaaksturs en hafði ekki tekið ökupróf ennþá. Sá var ekki með leiðbeinanda eða ökukennara sér við hlið.
33 ökumenn voru kærir fyrir að aka yfir leyfilegum hámarkshraða. Flestir þessara ökumanna voru stöðvaðir í Strandasýslu og í Ísafjarðardjúpi.

Umræða