• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 5. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bjarni “bakar” ekki vandræði – Tommi á Evuklæðunum

Þingheimur stendur vörð um virðingu þingsins, dag og nótt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. maí 2022
in Aðsent & greinar
A A
0
Ómerkilegt er kosningatrixið hjá Degi og hinir spila með til að fá atkvæði, varðandi þessa svokölluðu „þjóðarhöll.“ Bjarni heldur utan um skattpeningana okkar og veit sem er að það er þrýstihópur sem spilar og horfir á handbolta sem vill fá þarna handboltasal fyrir 20 til 30 milljarða.
Guðmundur Magnússon skrifar

Bjarni “bakar” ekki vandræði á meðan, nóg er nú samt um axarsköftin hjá þessum blessuðum handhöfum almannavaldsins. Sigurður Ingi gengur nú undir uppnefninu ,,Siggi Svert-Ingi.“ Og þá má ekki gleyma Tomma á Búllunni sem er með allt niður um sig bókstaflega og af honum eru birtar myndir nánast á Evuklæðunum í götublöðum daglega, milli þess sem hann sefur í Þingsalnum.

Allt atferli þingmannsins hefur svo verið blessað af æðstaklerki Flokks fólksins. Spurning hvort sú blessun hafi farið fram á samkomustað flokksins sem er í kirkju þjóðarinnar að mér skilst. Formanninum þótti samt ekki tilefni til að blessa menn sem staddir voru í Klaustri sem seldi áfengi yfir barborð og er í daglegu tali nefndur Klaustursbar. Nei þeir voru fordæmdir og heppnir að hafa ekki verið grýttir öðruvísi en úr glerhúsi Flokks fólksins.

Auðvitað var þetta allt annað mál með þá félaga á Klaustri, þeir voru nú bara að ræða hlutina í orði og engar voru athafnirnar. Í tilfelli Tomma var þetta hinsvegar á borði, eða líklega á einhverju mýkra undirlagi. En hann hefur sér það þó til málsbóta að hann var algerlega varnarlaus þegar hann sængaði með ungri konu á Thailandi. Sakleysi Tomma og varnarleysi hans í þessum aðstæðum sem Inga Sæland hefur blessað,  hefur jú komið fram og verið staðfest skriflega, hann var jú smokklaus!

Ég óska öllum góðrar helgar og sérstaklega þingheimi sem stendur vörð um virðingu þingsins, dag og nótt, hérlendis sem erlendis.

https://gamli.frettatiminn.is/06/05/2022/undirritun-vegna-nyrar-thjodarhallar-i-reykjavik/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bana­slys á Fjarðar­heiði

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Leiguverð á kvóta 420.000 krónur tonnið í júlí 2022 – Kvótagreifi sem leigir frá sér kvóta borgar ekki krónu til samfélagsins

    399 deilingar
    Share 361 Tweet 16
  • Endurmenntun bílstjóra – sektir og kyrrsetning

    81 deilingar
    Share 32 Tweet 20
  • Samtök tryggingafélaga staðin að ósannindum

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd brást börnum og föður þeirra

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?