• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Forseti ASÍ sólundar sjóðum félagsmanna sinna í áróður gegn eigin fólki''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. júní 2018
in Óflokkað
A A
0

,,Forseti ASÍ sólundar sjóðum félagsmanna sinna í áróður gegn eigin fólki“

,,Á „ólgu- og átakaárunum“ hækkuðu laun um allt að 55% á ári. Lítið kom út úr því annað en slagsmál og kollsteypur. Hækkanirnar hurfu í vaxtaokur og verðbólgubál.
Síðan hafa verðmæti launanna, kaupmátturinn, aukist um 85% þrátt fyrir minni launahækkanir.“ Þannig hljómar ein af þeim auglýsingum sem að Gylfi Arnbjörnsson núverandi formaður ASÍ stendur fyrir og hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir. Aðildafélög hafa ítrekað óskað eftir því að þessari auglýsingaherferð verði hætt, en Gylfi hefur ekki orðið við því og hefur ferkar bætt í og aukið magn auglýsinga í umferð. Þvert á óskir aðildarfélaga sem að telja boðskap auglýsinganna frekar þjóna viðsemjendum launþegahreyfinganna en þeim sjálfum.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR hefur m.a. lýst yfir vonbrigðum sínum með auglýsingarnar og þá stefnu sem að í þeim er boðið og segir m.a. að forseti ASÍ sé að sólunda sjóðum félagsmanna sinna í áróður gegn eigin fólki. Alvarlegri geta ásakanir gegn formanni ASÍ varla orðið og ljóst er að stríðsástand er innan launþegahreyfinga. Ragnar Þór tjáir sig um málið og er mjög ósáttur við vinnubrögð Gylfa Arnbjörnssonar :
,, Á hvaða vegferð er ASÍ með þessari herferð sinni sem er í öskrandi mótsögn við raunveruleikann?
Að halda því fram að launahækkanir og barátta þeirra sem á undan voru hafi litlu sem engu skilað er ekki bara rangt í sögulegu samhengi heldur líka siðlaust og sýnir fordæmalausan hroka og yfirlæti gegn þrotlausri baráttu hreyfingarinnar fyrir bættum lífskjörum á árunum fyrir þjóðarsátt.
Það þarf ekki að kafa djúpt í söguna til að sjá hvernig verkalýðshreyfingin þurfti að takast á við gengisfellingar og elta þannig mikla verðbólgu en ekki öfugt.
Á meðan herferðin er augljóslega ætluð gegn nýju fólki innan okkar raða sem hafnar aðferðarfræði síðustu ára og áratuga ,og boðar róttækari verkalýðsbaráttu og hvassari orðræðu, er yfirskriftin sterkari saman eins mikil öfugmæli og hugsast getur þar sem boðskapur ASÍ fer vægast sagt illa í okkar félagsmenn.
Það sem er enn dapurlegra er að herferðin gæti verið skrifuð af viðsemjendum okkar sem sitja sjálfsagt skellihlæjandi með hendur í skauti á meðan forseti ASÍ sólundar sjóðum félagsmanna sinna í áróður gegn eigin fólki.
Formenn stærstu stéttarfélaga og landssambanda innan ASÍ hafa nær allir hvatt forseta ASÍ til að láta af þessum áróðri sem hann sniðgengur og bætir frekar í.
Það er dapurlegt að þurfa að bíða fram í október eftir að nýr forseti verði kjörinn á þingi sambandsins.“ Segir Ragnar Þór Ingólfsson um málefni ASÍ.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Rannsókn á andláti

    353 deilingar
    Share 141 Tweet 88
  • Lýst eftir Hlyni Gíslasyni

    58 deilingar
    Share 23 Tweet 15
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Miljarð króna gjaldþrot á fasteign sem hýsir Heimahúsið – Engar eignir fundust

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?