• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ísland undirritar samkomulag um vinnudvöl ungmenna í Kanada

Ísland undirritar samkomulag um vinnudvöl ungmenna í Kanada

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. ágúst 2023
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0
Samkomulag milli Íslands og Kanada um vinnudvöl ungmenna (e. Youth Mobility) á aldrinum 18 til 30 ára var undirritað í gær. Samningurinn kveður á um að ungmenni á þessum aldri geti ferðast og starfað í Kanada í allt að 12 mánuði, með möguleika á að framlengja dvölina um 12 mánuði.Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem stödd er í Winnipeg í Kanada í tilefni af Íslendingadeginum í Manitoba, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands. Áslaug Arna tekur þar þátt í hátíðarhöldum tengdum Íslendingadeginum, þar á meðal skrúðgöngu, fjallkonuhádegisverði og móttöku formanns Íslendingadagsins, ásamt því að flytja ávarp við hátíðarhöldin.

„Við erum stolt af þessu samstarfi við Kanada. Það gefur íslenskum ungmennum tækifæri á að kynnast ólíkri menningu og víkka sjóndeildarhringinn, ásamt því að gera þeim kleift að ná sér í verðmæta starfsreynslu á alþjóðlegum vettvangi.“ segir Áslaug Arna.

Gert er ráð fyrir því að samningurinn verði innleiddur árið 2024, þegar að allar kröfur hafa verið uppfylltar. Samningurinn er gagnkvæmur, en það var Marie-France Lalonde, þingritari ráðherra innflytjenda, flóttamanna og ríkisborgararéttar sem undirritaði samninginn fyrir hönd Kanada. Hann mun gera 120 ungmennum frá hvoru landi fyrir sig kleift að dvelja og starfa í Kanada eða á Íslandi í allt að 24 mánuði. Samningurinn verður þriðji vinnudvalarsamningurinn sem íslensk ungmenni geta nýtt sér, en þegar eru í gildi slíkir samningar við Bretland og Japan.

Þá styrkir samningurinn enn frekar tengslin milli Íslands og Kanada sem byggjast á góðu samstarfi ríkjanna og sameiginlegum gildum.

  • Ísland undirritar samkomulag um vinnudvöl ungmenna í Kanada - mynd úr myndasafni númer 1
Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvennaathvarf fær 30.000.000 kr. en karlaathvarf 3.500.000 kr.

    Samtök um karlaathvarf -„ekki réttu aðilarnir til að hljóta styrk“

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Stórútgerðin greiðir himinhá veiðigjöld erlendis

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Flogið með lækningarvörur til Bretlands

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Eldsneyti hjá Costco hefur lækkað um hundrað krónur

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Borgarísjakar 55 mílur frá landi

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?