Enn þrengir að Trump
,,Það þrengir enn að Donald Trump í Hvíta Húsinu. Nú er það tvennt, sem veldur honum vaxandi erfiðleikum.
Annars vegar nafnlaust bréf í New York Times innan úr innsta hring stjórnkerfis hans, hins vegar ný bók eftir Bob Woodward, annan tveggja blaðamanna, sem urðu frægir í Watergate-málinu og lýsir hinni innri veröld Trumps.
Í báðum tilvikum er lýst manni, sem er óhæfur til að gegna því embætti, sem hann situr í, sem er í samræmi við niðurstöður margra sem fylgjast með úr mikilli fjarlægð.
Það sem hefur þó vakið athygli er hversu fáir úr hópi þingmanna repúblikana gera athugasemdir við framgöngu Trumps. En kannski liggur skýringin á því í augum uppi. Þeir vilja ekki kalla yfir sjálfa sig árásir frá Trump og hans heitustu aðdáendum, sem vissulega eru til, fyrir kosningar.
Líklegt er hins vegar að margir þeirra snúist gegn honum þegar þeir hafa náð endurkjöri.
Allt er þetta ótrúleg saga en það var Watergate-málið líka, sem felldi Richard Nixon. “ Segir Styrmir Gunnarsson, f.v. Ritstjóri Morgunblaðsins
Discussion about this post