Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast í dag, 5. september. Breytilegir vextir neytendalána hækka 30 dögum eftir tilkynningu þar um en vextir yfirdráttarlána, nýrra útlána og innlána breytast strax.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Óverðtryggð íbúðalán
- Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,75 prósentustig.Vegna frestunar á vaxtahækkun frá 28. júní munu vextir hækka þann 25. september um 1,0 prósentustig og verða 6,59%. Hækkunin nú um 0,75 prósentustig tekur gildi 5. október og verða vextir þá 7,34%.
Verðtryggð íbúðalán
- Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,30 prósentustig og verða 2,19%
- Verðtryggðir fastir 5 ára íbúðalánavextir hækka um 0,30 prósentustig og verða 2,19%
Kjörvextir
- Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,75 prósentustig.Vegna frestunar á vaxtahækkun frá 28. júní munu vextir hækka þann 25. september um 1,0 prósentustig og verða 7,60%. Hækkunin nú um 0,75 prósentustig tekur gildi 5. október og verða vextir þá 8,35%.
- Almennir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,30 prósentustig og verða 3,70%
Yfirdráttur og greiðsludreifing
- Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 0,75 prósentustig
Bílalán
- Kjörvextir bílalána hækka um 0,75 prósentustig.Vegna frestunar á vaxtahækkun frá 28. júní munu vextir hækka þann 25. september um 1,0 prósentustig og verða 8,00%. Hækkunin nú um 0,75 prósentustig tekur gildi 5. október og verða vextir þá 8,75%.
Innlán
- Breytilegir óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga hækka um allt að 0,75 prósentustig. Vextir veltureikninga hækka um 0,10 prósentustig.
Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.
Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.
Umræða