Nafn konunnar sem lést í smábátahöfninni á Vopnafirði í gærmorgun var Violeta Mitul. Hún var 26 ára gömul.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ungmennafélaginu Einherja á Vopnafirði en Mitul spilaði knattspyrnu með meistaraflokki félagsins. Hún fæddist í Moldóvu árið 1997 og gekk til liðs við Einherja í vor til að spila knattspyrnu með liðinu.
Í tilkynningu frá Einherja segir að Violeta hafi gegnt lykilhlutverki í liði meistaraflokks kvenna í sumar. Hún hafi verið góðhjörtuð, dugleg og brosmild.
„Hún var traustur liðsmaður og fyrirmyndar fótboltakona. Andlát hennar er okkur öllum mikið áfall og skarðið sem hún skilur eftir sig stórt. Hugur okkar er hjá liðsfélögum hennar og þjálfurum sem syrgja traustan Einherja,“ segir í tilkynningunni.
Tilkynningin frá Einherja
Það er með djúpri sorg í hjarta sem við tilkynnum um sviplegt fráfall leikmanns okkar, liðsfélaga og vinkonu, Violetu Mitul sem lést af slysförum aðfaranótt 4. september, aðeins 26 ára gömul. Samfélagið á Vopnafirði er harmi slegið.
Violeta, sem fæddist 3. apríl 1997 í Moldóvu, gekk til liðs við Einherja í vor og gegndi lykilhlutverki í liði meistaraflokks kvenna í sumar. Violeta var góðhjörtuð, dugleg og brosmild. Hún var traustur liðsmaður og fyrirmyndar fótboltakona. Andlát hennar er okkur öllum mikið áfall og skarðið sem hún skilur eftir sig stórt. Hugur okkar er hjá liðsfélögum hennar og þjálfurum sem syrgja traustan Einherja.
Fjölskyldu Violetu, þeim Alexandru, Mariu, Veaceslav og Juliu sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Á svo hörmulegri stundu eru engin orð eða gjörðir sem græða sárið sem missirinn skilur eftir sig en við munum gera það sem í okkar valdi stendur til að létta undir með fjölskyldu og vinum sem eiga um sárt að binda á þessum sorgartímum.
Söfnunarreikningur fyrir fjölskyldu Violetu hefur verið stofnaður í nafni félagsins:
610678-0259
0178-05-000594
Ungmennafélagið Einherji