• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lífeyrissjóður verzlunarmanna lækkar vexti á húsnæðislánum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. október 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Frá og með 3. október 2019 lækka fastir vextir verðtryggðra lána hjá lífeyrissjóðnum úr 3,40% í 3,20% og vextir af óverðtryggðum lánum verða óbreyttir 5,14%. Þetta er samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins og munu samhliða þessu lánareglur sjóðfélagalána taka breytingum.
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hefur ákveðið breytingar á lánareglum sjóðfélagalána. Breytingarnar fela eftirfarandi í sér: Lánsréttur miðast við virka sjóðsfélaga eða þá sem hafa greitt iðgjald til sjóðsins í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum, einnig eiga lánsrétt þeir sem greitt hafa til sjóðsins í samtals 36 mánuði. Hámarksfjárhæð láns verður 40 miljónir króna. Fastir vextir verðtryggðra lána lækka úr 3,40% í 3,20% og vextir af óverðtryggðum lánum verða óbreyttir 5,14%. Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum verða ekki í boði fyrir nýja lánþega.
Eftirspurn eftir sjóðfélagalánum hefur aukist mikið frá því lánareglur voru rýmkaðar árið 2015. Þá voru sjóðfélagalán um 6% af heildareignum sjóðsins, en eru nú um 13% sem er með því hæsta í íslenska lífeyrissjóðakerfinu. Sjóðfélagalán voru um síðustu mánaðamót um 107 milljarðar króna og í umsóknarferli hjá sjóðnum eru um 25 milljarðar króna að meðtöldum umsóknum um endurfjármögnun.
Mánuðina júlí, ágúst og september hefur umfang lánsumsókna þrefaldast miðað við sama tíma í fyrra. Öll fyrirliggjandi gögn benda til áframhaldandi vaxtar. Þessi vöxtur leiðir að óbreyttu til ójafnvægis í áhættudreifingu sjóðsins og því óhjákvæmilegt að stjórn bregðist við því. Eftir ítarlegar athuganir stjórnar með sérfræðingum sjóðsins, þ.á m. í útlánum, eignastýringu og áhættustýringu, er niðurstaðan eftirfarandi:
Lánsrétt eiga, að uppfylltum öðrum skilyrðum lánareglna:

  • sjóðfélagar sem hafa greitt iðgjöld í 6 af sl. 12 mánuðum eða
  • sjóðfélagar sem hafa greitt iðgjöld í 36 mánuði fyrir umsókn
  • makalífeyrisþegar enda hafi maki lánsumsækjanda átt lánsrétt
  • veiting nýs láns til endurfjármögnunar eldra láns hjá lífeyrissjóðnum er háð því skilyrði að viðkomandi sé með virkan lánsrétt.

Hámarksfjárhæð láns lækkar úr 50 milljónum króna í 40 milljónir.
Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum verða ekki lengur í boði fyrir nýja lántaka.
Vextir af verðtryggðum lánum með föstum vöxtum lækka úr 3,40% í 3,20%.
Vextir af óverðtryggðum lánum með föstum vöxtum til þriggja ára verða áfram 5,14% en þess má geta að vextir af þessum lánaflokki hafa lækkað um 1,68% stig frá því í mars á þessu ári og eru í dag lægstu vextir óverðtryggðra íbúðalána með föstum vöxtum samkvæmt herborg.is.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur veitt sjóðfélagalán frá stofnun sjóðsins árið 1956. Sjóðurinn mun áfram veita virkum sjóðfélögum fasteignalán á samkeppnishæfum kjörum.
Ofangreindar breytingar taka gildi 3. október 2019.
Nánari upplýsingar er að finna hér á vef sjóðsins og í lánareglum. Sjóðfélögum er velkomið að hafa samband við þjónustuver sjóðsins.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/10/06/lifeyrissjodir-og-verkalydshreyfingin-stofni-samfelagsbanka-eda-taki-annan-rikisbankann-og-breyti-honum/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?