Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Nýbýlavegar og Hjallabrekku í Kópavogi miðvikudaginn 5. október, en tilkynning um slysið barst kl. 08:42.
Þar varð árekstur rauðrar vörubifreiðar og dökkgrárrar Volkswagen bifreiðar en ökumönnum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa. Vörubifreiðinni var ekið Nýbýlaveg til austurs en fólksbílnum til vesturs með fyrirhugaða aksturstefnu til vinstri suður Hjallabrekku. Þrír voru fluttir á slysadeild.
Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið sigrun.jónasdottir@lrh.is
Umræða