• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Og þetta gerist á vakt tveggja ungra upplýstra kvenna í forsætis- og dómsmálaráðuneyti…''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. nóvember 2019
in Fólk, Innlent
A A
0

 

,,VG fólk hlýtur að hafa áttað sig á því loks nú að það situr með fallega klæddum fasistum við ríkisstjórnarborðið“

,,Dómsmálaráðherra, ríkislögreglustjóri, forstjóri Útlendingastofnunar, þið verðið að segja af ykkur. Þetta má ekki. Þið brugðust. Þið sjáið um þessi mál í nafni þjóðarinnar og þið brugðust.

Hallgrímur Helgason er ósáttur við hvernig tekið er á málum af Útlendingastofnun og krefst afsagna:

Hér er ekki hægt að vísa frá sér ábyrgð. Þetta var ykkar gjörð. Flestallir Íslendingar gráta athæfi ykkar og vilja ekki að svona sé farið með fólk á Íslandi. Og allir foreldrar vita hvernig það er að vera komnir upp á fæðingardeild eftir níu mánaða meðgöngu, þó ekki séu ríkislögregluljósin blikkandi á þá inn um gluggann.
Meðferð okkar á hælisleitendum og flóttamönnum hefur lengi verið til skammar. Við lifum hér í allsnægtum en erum samt svo ógnar treg að hleypa þurfandi fólki að borðinu. Við rekum hér, eins og danska skáldið sagði um sitt eigið land, fasíska útlendingapólitík, ómannúðlega og smásálarlega. Trekk í trekk hafa svona mál komið upp. En hér gangið þið alveg fram af okkur. Það hefur lengi verið ljóst hversu köld þessi pólitík er en á fyrsta degi í embætti sagði samt nýr dómsmálaráðherra stefnuna vera mannúðlega. Og nú er þá að standa með þeirri mannúð!
Það er gert með því að segja af sér.
26 ára gömul albönsk kona sem komin er níu mánuði á leið er borin út eins og hér sé um að ræða einhverja nútíma tegund af útburði, þeim svarta bletti á sögu landsins. Þar sem þessi atburður mun standa í Íslandssögunni verður dómurinn yfir ábyrgðarfólki hans æði svartur.
Og þetta gerist á vakt tveggja ungra upplýstra kvenna í forsætis- og dómsmálaráðuneyti…
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra

Ábyrgðin er þó einkum hjá þessum þremur, en VG fólk hlýtur að hafa áttað sig á því loks nú að það situr með fallega klæddum fasistum við ríkisstjórnarborðið. (Að hvert ráðuneyti geti síðan haft sína eigin stjórnarstefnu er svo auðvitað bara absúrd dæmi og annar debatt. Stefna allra ráðuneyta á auðvitað að vera á ábyrgð ríkisstjórnarinnar í heild.)
Lágmarkskrafa er því afsögn þessara þriggja strax og síðan á að senda fólk eins og skot út á eftir albönsku fjölskyldunni og sjá til þess að konan fái alla þá fæðingaraðstoð sem í boði er, hvar sem hún er niðurkomin, og fjölskyldunni verði svo boðið hingað um leið og færi gefst og gefinn ríkisborgararéttur. Til að lágmarka tjónið, til að sýna sæmd og sanna MANNÚÐ.
Við sættum okkur ekki við svona framkomu, við sættum okkur ekki við svona Ísland.“
https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10157530361579178&set=a.34286529177&type=3&eid=ARDm47QJF6UPGaDDmOfdjs45SLS8Vt_fDCK19btbq7VINhxPGddtpnSr2fvuORLi4B0nv3FylFgwwT_t

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?