6.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

Vöruviðskiptahalli nam 163,9 milljörðum

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Vöruviðskiptajöfnuður
Í nóvember 2018 voru fluttar út vörur fyrir 53,8 milljarða króna og inn fyrir 72,5 milljarða króna fob (77,6 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um tæplega 18,8 milljarða króna. Í nóvember 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 10,9 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í nóvember 2018 var því 7,9 milljörðum króna meiri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 18,2 milljörðum króna samanborið við 10,7 milljarða króna halla í nóvember 2017.
Á tímabilinu janúar til nóvember 2018 voru fluttar út vörur fyrir 549 milljarða króna en inn fyrir tæpa 713 milljarða (760,4 milljarða króna cif). Halli á vöruviðskiptum við útlönd nam því rúmum 163,9 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 152,8 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn á tímabilinu janúar til nóvember er því 11,1 milljarði króna meiri en á sama tíma fyrir ári. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 148,6 milljörðum króna, samanborið við 141,4 milljarða króna á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruútflutnings 72,6 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 15,2% á gengi hvors árs.¹ Iðnaðarvörur voru 53,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 15,1% hærra en á sama tíma árið áður. Hækkunina á milli ára má fyrst og fremst rekja til útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 39,8% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 19,2% hærra en á sama tíma árið áður. Aukning var í öllum undirliðum sjávarafurða milli ára sem meðal annars má rekja til sjómannaverkfalls í byrjun árs 2017.
Innflutningur
Á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 83,7 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 13,3% á gengi hvors árs.¹ Mestu munaði um innflutning á eldsneyti og unnum hrá- og rekstrarvörum.
Vöruviðskiptajöfnuður

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til nóvember 2017 og 2018
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
Nóvember Janúar-nóvember ári á gengi hvors árs, %
2017 2018 2017 2018 jan-nóv
Útflutningur alls fob 45.789,1 53.775,8 476.400,8 549.030,6 15,2
Sjávarafurðir 18.293,7 20.272,7 183.253,6 218.414,1 19,2
Landbúnaðarvörur 1.849,8 2.652,2 18.010,1 18.423,4 2,3
Iðnaðarvörur 24.640,9 29.514,0 255.048,5 293.471,4 15,1
Aðrar vörur 1.004,7 1.336,9 20.088,5 18.721,7 -6,8
Innflutningur alls fob 56.669,9 72.545,2 629.219,2 712.956,6 13,3
Matvörur og drykkjarvörur 4.996,4 5.672,3 52.628,2 58.585,3 11,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 14.850,2 23.324,2 166.751,9 200.437,1 20,2
Eldsneyti og smurolíur 6.736,7 11.356,8 73.274,0 108.007,2 47,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 13.372,3 14.808,1 135.790,9 145.977,0 7,5
Flutningatæki 7.135,7 7.470,0 115.523,3 108.015,1 -6,5
Neysluvörur ót.a. 9.554,9 9.870,6 84.985,5 88.926,2 4,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 23,7 43,2 265,4 3.008,8 1033,6
Vöruviðskiptajöfnuður -10.880,8 -18.769,4 -152.818,4 -163.926,1 7,3

1) Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum. Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.