• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 15. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Vaxtahækkun Arion banka var óheimil

Neytendur kanni stöðu sína

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. janúar 2021
in Fréttir, Innlent, Neytendur, Viðskipti
A A
0

 

Neytendastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu með ákvörðun sinni að vaxtahækkun Arion banka á tilteknum flokki húsnæðislána hafi brotið gegn neytendaverndarlögum. Ákvörðunin á rætur að rekja til kvörtunar Hagsmunasamtaka heimilanna fyrir hönd félagsmanns sem ofgreiddi vexti af tveimur húsnæðislánum í rúm fjögur ár, frá því að Arion banki hækkaði þá í apríl 2015.

Ólögmæt vaxtaendurskoðunarákvæði

Um er að ræða verðtryggð fasteignalán sem voru upphaflega veitt af Frjálsa fjárfestingarbankanum en í kjölfar bankahrunsins enduðu þau loks í eigu Arion banka. Lánin voru með föstum 4,15% vöxtum, en jafnframt með eftirfarandi stöðluðum skilmála um vaxtaendurskoðun.

“VAXTAENDURSKOÐUN. Kröfuhafa er heimilt að liðnum 5 árum frá útgáfudegi, og þar á eftir á 5 ára fresti, að endurskoða ofangreint vaxtaálag til hækkunar eða
lækkunar á vöxtum. Ákveði kröfuhafi að breyta vaxtaálaginu verður skuldara tilkynnt um það og ástæður þess tilgreindar. Vilji skuldari ekki una breytingunni er honum heimilt að greiða upp skuldina, án uppgreiðslugjalds, með því vaxtaálagi sem í gildi var fram að breytingunni, enda greiði hann skuldina að fullu innan 30 daga frá dagsetningu tilkynningar kröfuhafa.”

Þegar um áratugur var liðinn af lánstímanum ákvað Arion banki að endurskoða vextina og hækka þá í 4,35%. Þrátt fyrir að munurinn sé ekki stór safnast þegar saman kemur og til margra ára getur munað umtalsverðum fjárhæðum að krónutölu. Þess má geta að Hæstiréttur Íslands staðfesti árið 2017 að sambærilegir skilmálar hjá Íslandsbanka væru ólöglegir þar sem ekki kom fram við hvaða aðstæður eða af hvaða tilefni vextirnir gætu breyst, eins og áskilið er í lögum um neytendalán.

Neytendastofa hefur nú birt ákvörðun nr. 67/2020 þar sem er komist að þeirri niðurstöðu að Frjálsi fjárfestingarbankinn hafi brotið gegn lögum um neytendalán með því að tilgreina ekki í umræddum skilmálum við hvaða aðstæður vextir geti breyst. Jafnframt hefði Arion banki brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu sem banna óréttmæta viðskiptahætti, með því að hækka vexti á grundvelli hins ólögmæta skilmála um vaxtaendurskoðun.

Neytendur kanni stöðu sína

Hagsmunasamtök heimilanna hvetja neytendur sem kunna að hafa tekið sambærileg lán til að kanna stöðu sína, skoða hvort samskonar skilmálar séu í lánum sínum, hvaða vextir hafi verið innheimtir og hvort þeir hafi á einhverjum tímapunkti verið hækkaðir. Ef svo er getur verið brýnt að beina sem fyrst kröfu til bankans um leiðréttingu á vöxtum og endurgreiðslu oftekinna vaxta.

Samtökunum er ekki kunnugt um hvort Arion banki hafi að sínu eigin frumkvæði rétt hlut annarra viðskiptavina með sambærileg lán. Reyndar hefur bankinn alfarið hafnað því að upplýsa samtökin um slík atriði, en þó liggur fyrir að um talsverðan fjölda lána er að ræða.

Neytendur sem vilja kanna réttarstöðu sína eða þurfa aðstoð við að setja fram kröfu um leiðréttingu og endurgreiðslu oftekinna vaxta, geta leitað til Hagsmunasamtaka heimilanna. Helst með tölvupósti á heimilin@heimilin.is eða að öðrum kosti símleiðis á auglýstum símatímum eins og kemur nánar fram á heimasíðu samtakanna www.heimilin.is

Hagsmunasamtök heimilanna

https://gamli.frettatiminn.is/19/11/2020/krefjast-ad-bankarnir-dragi-vaxtaokur-og-vaxtahaekkanir-til-baka-250-vaxtamunur/

Umræða
Share4Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    169 deilingar
    Share 68 Tweet 42
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    113 deilingar
    Share 45 Tweet 28
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Líkfundur

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?