• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fiskeldi að Laxamýri við Húsavík

Ráðstefna um samvinnu í þjónustu við þolendur heimilisofbeldis

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. febrúar 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Heilbrigðisráðuneytið og embætti ríkislögreglustjóra standa saman að ráðstefnu fyrir fagfólk í framlínu heilbrigðiskerfis og lögreglu sem miðar að því að tengja betur saman þjónustu þessara aðila við þolendur heimilisofbeldis. „Á ég að gera það? Samvinna í þjónustu við þolendur heimilisofbeldis“ er yfirskrift ráðstefnunnar sem haldin verður mánudaginn 18. mars á hótel Hilton Reykjavík Nordica kl. 09.00-16.00.

Undanfarin misseri hefur mikil vinna átt sér stað af hálfu stjórnvalda til að efla og bæta þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis, jafnt heimilisofbeldis og kynferðisofbeldis. Þetta hefur verið eitt af forgangsmálum Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra. Hann hefur m.a. lagt áherslu á verkefni sem miða að auknu samstarfi þeirra sem koma að þjónustu við þolendur, að móta og innleiða samræmt verklag þjónustunnar innan heilbrigðiskerfisins, bæta skráningu o.fl. Brotaþolum kynferðisofbeldis hefur verið tryggð sálfræðiaðstoð að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu í samstarfi við áfallateymi geðsviðs Landspítala og fjármögnuð hafa verið sex stöðugildi sérfræðinga í heimilisofbeldismálum sem sinna þolendum af öllu landinu.

“Á ég að gera það?”

Samvinna í þjónustu við þolendur heimilisofbeldis

Ráðstefna fyrir fagfólk í framlínu heilbrigðiskerfis og lögreglu
Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2
Mánudaginn 18. mars 2024 kl. 9:00-16:00

8:45- 9:00        Mæting og kaffi

9:00- 9:15        Ráðstefnunni ýtt úr vör og nokkur orð um samvinnu

Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri á Höfuðborgarsvæðinu

9:15- 9:30        Verklag í heilbrigðisþjónustu um móttöku þolenda heimilisofbeldis

                         Drífa Jónasdóttir sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu

9:30-10:00       Höldum glugganum opnum; samvinna á milli kerfa í heimilisofbeldismálum

Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur  embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum

10:00-10:20     Innleiðing verklags í heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi

Björk Steindórsdóttir yfirljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands

10:20-10:45     Barnavernd, tilkynningaskyldan og samvinna á milli kerfa

Lára Steinunn Vilbergsdóttir og Ragnheiður Braga Geirsdóttir félagsráðgjafar hjá Barnavernd Reykjavíkur

10:45-11:00     Heimilisofbeldisteymi Landspítalans

                         Þjónusta Landspítalans í heimilisofbeldismálum                    

11:00-11:20     Samvinna út frá sjónarhorni lögreglu

Þóra Jónasdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu

11:20-11:30     Ávarp Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra

11:30-11:40     Slit fyrri hluta ráðstefnunnar og fyrirkomulag seinni hluta hennar kynnt

11:40-12:30     Hádegishlé

12:30-15:15     „Á ég að gera það?“ / skrifborðsæfing

                        Hópastarf á borðum þar sem þátttakendur greina og leysa einstök mál

15:15-16:00     Samantekt og ráðstefnuslit

Ekkert þátttökugjald er en nauðsynlegt að skrá þátttöku hér: https://forms.gle/Uu1AQntY1MH19czJ6
eða tilkynna um þátttöku með tölvupósti á netfangið: sigthrudur.gudmundsdottir@logreglan.is

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?