Tilkynning frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra
Líkt og kom fram í tilkynningu frá Vísindaráði Almannavarna á föstudag þá var það samdóma álit vísindamanna að við erum nú í tímabili þar sem kvika flæðir inn í jarðlög undir Fagradalsfjalli. Við það myndast spenna í norður-suður sprungum austan og vestan við umbrotasvæðið. Þegar næg spenna hefur myndast, þá hrökkva sprungurnar og við það koma skjálftahrinur.
Eftir þær kemur slökun og tímabil minni skjálfta þar til spennan verður aftur of há og svipuð hrina kemur. Gera má ráð fyrir því að ef gangurinn heldur áfram að myndast næstu daga og vikur þá megi eiga von á slíkum áhlaupum og jarðskjálftahviðum nokkrum sinnum.
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Veðurstofa Íslands funduðu ásamt Lögreglunni á Suðurnesjum og fulltrúa Grindavíkurbæjar kl. 03.30 í nótt vegna fjölda jarðskjálfta af stærðinni 3-5 á svæðinu frá Þorbirni að Fagradalsfjalli. Jarðskjálftarnir finnast vel í Grindavík og fólk er skiljanlega órólegt.
Líklegast er að skjálftarnir sem finnast núna í Grindavík séu afleiðingar spennubreytinga í jarðskorpunni, en ekki vegna tilfærslu á kviku. Það er því ekki metið sem svo að þeir séu skammtímafyrirboði eldgoss. Áfram má búast við jarðskjálftum í nótt sem finnast vel í Grindavík. Náttúruvásérfræðingar Veðurstofunnar og Almannavarnadeild fylgjast vel með þróun mála í nótt. Vegagerðin og Lögreglan á Suðurnesjum eru á ferð og kanna hvort skemmdir hafi orðið á vegum. Staðan verður endurmetin í fyrramálið.