Í nógu hefur verið að snúast hjá lögreglunni þessa helgina eins og flestar aðrar. Ökumaður var t.d. tekinn fyrir of hraðan akstur á Hafnarfjarðarvegi, ökumaðurinn var mældur á 175 km hraða þar sem hámarkshraði er 80.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu á bensínstöð í Mosfellsbæ vegna stúlku í annarlegu ástandi. Stúlkan sem reyndist aðeins 13 ára,var í mjög annarlegu ástandi og veik sökum þess. Flutti lögreglan stúlkuna á slysadeild þar sem foreldrum og barnavernd var gerð grein fyrir málinu.
Þá óskuðu dyraverðir í miðbænum eftir aðstoð lögreglu vegna karlmanns sem veitist að þeim, maðurinn fjarlægður af vettvangi og sleppt að upplýsingatöku lokinni. Lögreglan var kvödd að gistiskýlið vegna líkamsárásar og eignaspjalla. Maðurinn var fjarlægður af vettvangi en var svo laus úr haldi lögreglu eftir upplýsingatöku.
Óskað eftir aðstoð lögreglu á skemmtistað í Breiðholti, en þar inni var maður til ama fyrir aðra gesti. Maðurinn mjög ölvaður og aðstoðaður út af staðnum og í leigubíl. Gangandi vegfarendur óskuðu eftir aðstoð lögreglu vegna sofandi manns í runna i hverfi 101, maðurinn vakinn af lögreglu og hélt hann för sinni áfram hinn hressasti eftir létt spjall við lögreglu.
Lögreglan var kölluð til í verslun í Breiðholti vegna konu í annarlegu ástandi, henni vísað út og hélt hún sína leið. Óskað eftir aðstoð lögreglu og slökkviliðs í Grafarvog, en þar var tilkynnt um reyksynjara í gangi. Hafði plast brunnið á hellu en enginn eldur.
Hringt var í lögreglu úr hverfi 110 vegna gluggagægis. Kona segir að maður sé búinn að liggja á glugganum hjá sér í um 10 mínútur. Maðurinn farinn er lögregla kom á vettvang.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu í heimahús í hverfi 105, þar inni var 16 ára stúlka ölvuð og í vanlíðan. Var stúlkan flutt á slysadeild með sjúkrabíl. Var foreldrum og barnavernd gert grein fyrir málinu. Lögreglan stöðvaði 6 ökumenn fyrir ölvun og eða fíkniefnaakstur. Einnig reyndust tveir þeirra sviptir ökuréttindum og með fíkniefni í fórum sínum.
Einnig sinnti lögregla útköllum vegna hávaða víðsvegar um borgina.