• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. maí 2018
in Óflokkað
A A
0
Í síðustu viku slösuðust sextán vegfarendur í níu umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 29. apríl – 5. maí.


Þrjú umferðarslys voru tilkynnt sunnudaginn 29. apríl. Kl. 2.42 var bifreið ekið vestur Hringbraut og aftan á kyrrstæða bifreið á brautinni austan Njarðargötu. Ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar var upptekinn við að stilla miðstöðina áður en óhappið varð. Hann, ásamt farþega og ökumanni hinnar bifreiðarinnar, var fluttur á slysadeild.
Kl. 1.54 féll ölvaður maður af reiðhjóli á bifreiðastæði við Suðurlandsbraut 48. Hann var fluttur á slysadeild. Og kl. 5.40 varð gangandi vegfarandi, á leið norður yfir Bankastræti vestan Þingholtsstrætis, fyrir bifreið, sem var ekið vestur Bankastræti. Ökumaðurinn ók á brott af vettvangi, en fannst skömmu síðar með aðstoð vitnis og eftir skoðun á upptöku úr eftirlitsmyndavélakerfi Miðborgarinnar. Gangandi vegfarandinn var fluttur á slysadeild.
Mánudaginn 30. apríl kl. 14.48 varð þriggja bifreiða aftanákeyrsla á Vesturlandsvegi í Ártúnsbrekku á leið til austurs. Einn ökumannanna var fluttur á slysadeild.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt fimmtudaginn 3. maí. Kl. 5.16 var bifreið ekið suður Hafnarfjarðarveg og á ljósastaur við veginn skammt norðan fráreinar að Arnarnesvegi. Ökumaður og þrír farþegar voru fluttir á slysadeild. Og kl. 8.42 varð drengur á vespu fyrir bifreið, sem var ekið austur Álfhólsveg og beygt áleiðis að húsi nr. 10. Honum var ekið á slysadeild.
Föstudaginn 4. maí kl. 18.49 féll maður af rafmagnsreiðhjóli á göngustíg milli Sóltúns og Kringlumýrarbrautar. Hann var fluttur á slysadeild.
Tvö umferðarslys voru tilkynnt laugardaginn 5. maí. Kl. 5.33 var bifreið ekið norður Hafnarfjarðarveg og á ljósastaur í Fossvogi skammt sunnan við Nesti. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild. Og kl. 16.31 varð aftanákeyrsla á Miklubraut vestan Grensásvegar á leið til austurs. Þrír farþegar í fremri bifreiðinni voru fluttir á slysadeild.
Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli allra vegfaranda á mikilvægi þess að fara ávallt varlega í umferðinni. Það á ekki síst við um ökumenn – hvort sem um er að ræða bifreiða eða reiðhjóla.

Frá vettvangi á Hafnarfjarðarvegi, sunnan við Nesti.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?