Legsteinum velt um koll í kirkjugarðinum í Bolungarvík
Í gær var lögreglunni tilkynnt um að skemmdir hafi verið unnar á nokkrum leiðum í garðinum. En svo virðist sem a.m.k. þremur legsteinum hafi verið velt um koll og einn leiðiskross tekin upp.
Þetta er litið mjög alvarlegum augum og óskar lögreglan eftir upplýsingum frá þeim sem kunna að hafa séð til grunsamlegra mannaferða í eða við kirkjugarðinn síðustu sólarhringana.
Umræða