Vopnað rán var framið í Reykjavík þegar einstaklingur ógnaði vegfaranda með hníf og krafði hann um fjármuni. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.
Tilkynnt var um eignaspjöll utan á íbúðarhúsnæði í Vesturbænum. Búið var að skvetta á það rauðum matarlit að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gærkvöldi til klukkan 5 í morgun.
16 ára ók á móti umferð
Hjá lögreglunni í Kópavogi og Breiðholti var talsverður erill og m.a. var kvartað var undan samkvæmishávaða í íbúðarhúsum.
Afskipti voru höfð af ökumanni sem ók á móti umferð í Breiðholti. Hann reyndist vera 16 ára og verður málið unnið í samráði við foreldra og barnaverndaryfirvöld.
Umræða