• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Framhald Verbúðarinnar í fæðingu á Alþingi

Framhald Verbúðarinnar í fæðingu á Alþingi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. júní 2023
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Svandís Svavars­dótt­ir mat­vælaráðherra hef­ur lagt fram frum­varp um að einka­væða skuli grá­slepp­una og setja fisk­inn inn í hið ill­ræmda gjafa­kvóta­kerfi. Með þess­um gjörn­ingi gref­ur hún und­an framtíð smá­báta­út­gerðar og minni sjáv­ar­byggða.

Sigurjón Þórðarson alþingismaður, skrifar
Þá mun fyr­ir­huguð einka­væðing grá­slepp­unn­ar óneit­an­lega tak­marka at­vinnu­frelsi sjó­manna. At­vinnu­frelsið nýt­ur vernd­ar 75. gr. stjórn­ar­skrár­inn­ar. Þessu frelsi má setja skorður, enda krefj­ist al­manna­hags­mun­ir þess, en ekki er að sjá að frum­varpið standi vörð um al­manna­hags­muni að nokkru leyti – öllu held­ur ber það merki sér­hags­muna­gæslu. Slíkt er ekk­ert annað en stjórn­ar­skrár­brot!

Það er eng­in spurn­ing að með þess­um ómerki­legu og óskilj­an­legu vend­ing­um er Svandís á góðri leið með að skrifa sig ræki­lega inn í kom­andi þáttaröð Ver­búðar­inn­ar.

Þessi svarti blett­ur á póli­tísk­um ferli ráðherr­ans er kjör­inn efniviður til grát­bros­legr­ar sam­fé­lags­legr­ar rýni enda ein­kenn­ist seta henn­ar í mat­vælaráðuneyt­inu m.a. af hroka, óheiðarleika, köld­um og vél­ræn­um þan­ka­gangi og ofan á það er kryddað með stjórn­ar­skrár­brot­um.

Það er bein­lín­is kjána­legt hjá flokki sem kall­ar sig Vinstri hreyf­ing­in – grænt fram­boð, sem barðist um á hæl og hnakka gegn einka­væðingu Sam­herj­aráðherr­ans á grá­slepp­unni á síðasta kjör­tíma­bili, að flytja nú frum­varp sama efn­is. Það er sér í lagi skringi­legt þegar ekki er að finna staf­krók um áformin í nokkru stefnu­mark­andi skjali flokks­ins um að hann hygg­ist grafa und­an smá­báta­út­gerð, held­ur miklu frek­ar hið gagn­stæða.

Það sem ræður för við einka­væðingaráformin er aug­ljós­lega ekki nein fisk­vernd­ar­sjón­ar­mið enda grá­sleppu­stofn­inn við hesta­heilsu. Ekki er held­ur að sjá að um­hyggja fyr­ir arðsemi grá­sleppu­veiða sé lögð til grund­vall­ar. Ef svo væri þá hefði verið nær­tæk­ast að gefa grá­sleppu­bát­um kost á að fé­nýta að fullu meðafla.

Það virðist ráða för að mat­vælaráðherra hef­ur kok­g­leypt sjón­ar­mið þeirra sem vilja fá þessa auðlind þjóðar­inn­ar gef­ins, þ.e. gamla góða Ver­búðarsag­an. Ráðherra Vinstri grænna virðist horfa til kaldra kerf­is­lægra lausna – einka­væðing­unni skal komið á jafn­vel þó vitað sé að það kosti eyðingu byggða.

Umræðan á Alþingi við fyrstu umræðu frum­varps­ins var nán­ast leik­ræn, en nokkr­ir þing­menn Vinstri grænna stóðu vörð um ráðherra sinn og ein­staka skjald­mey gerði hróp að þeim sem beindu gagn­rýni að einka­væðing­ar­ráðherr­an­um, reynd­ar með einni und­an­tekn­ingu. Varaþingmaður Vinstri grænna, vest­an af fjörðum, Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir, flutti góða ræðu um and­stöðu sína við frum­varpið. Hún bað at­vinnu­rétt­ind­um sinn­ar heima­byggðar griða fyr­ir græðgi­svæðingu ráðherr­ans.

Hvað hef­ur komið fyr­ir Vinstri græna? – Gera ráðherr­ar VG allt fyr­ir frægðina? Myndu þeir jafn­vel brjóta stjórn­ar­skrána?

Umræða
Share3Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Togarar á strandveiðum

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    183 deilingar
    Share 73 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    128 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?