Stangaveiðifélag Reykjavíkur er leigutaki að ánni Hítará, í morgun féll skriða yfir ánna og óvíst er með framhald á veiði í ánni. Björgunarsveitir og aðilar frá ríkinu eru að skoða aðstæður á staðnum.
Eins og fram hefur komið féll gífurlega mikil skriða í Hítará á Mýrum nú í morgunsárið. Skriðan féll úr Fagraskógarfjalli nokkuð fyrir ofan Kattarfoss.
Um síðustu helgi var geysi mikið vatn í ánni og stíflan við Hítarvatn var vel opin fyrir rennsli en mjög mikið vatn var vegna rigninga sem hafa varað meira og minna stanslaust í allt sumar og hafa ekki verið meiri síðan 1914.
Viðmælandi okkar sem hefur stundað veiðar á svæðinu í 35 ár sagðist ekki muna eftir eins miklu rennsli í ánni fyrr og yfirborð Hítarvatns sögulega hátt.
Á þessari stundu er ómögulegt að segja til um hvaða áhrif þessi skriða hefur á veiðina í Hítará, eins og staðan er akkúrat núna þá kemur það í ljós á allra næstu dögum hvernig áin mun haga sér við þennan nýja tálma sem féll í hana.
“SVFR er á þessari stundu ekki kunnugt um hvaða áhrif þessi skriða mun hafa á ánna, en SVFR í samráði við landeigendur og Hafrannsóknarstofnun er að vinn að viðbragðsáætlun. Við munum færa ykkur frekari fréttir um leið og þær berast.,, Segir á vef Stangaveiðifélagsins.
https://gamli.frettatiminn.is/2018/07/08/thyrlan-flaug-yfir-svaedid-i-hitardal/