• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 12. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Jafnvel 21 til 23 stig – ,,Ef ekki að fara í gönguferðir eða útilegu, þá hvenær?“

Jafnvel 21 til 23 stig – ,,Ef ekki að fara í gönguferðir eða útilegu, þá hvenær?“

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. júlí 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings -,,Ef ekki er rétti tíminn að fara í gönguferðir eða útilegu eftir þessa veðurspá, þá hvenær?“

Allmikill hæðarhryggur yfir Grænlandshafi og stjórnar veðurlaginu helgarinnar, sem verður sannkallað sumarveður. Fremur hægir norðaustanvindar leika um landið í dag, en strekkingur eða allhvasst og dálítil rigning við suðausturströndina í kvöld og fram á nótt. Fremur svalt í þokumóðu eða súld við sjávarsíðuna í morgunsárið, en hlýnar talsvert þegar sólir leysir þokubakkana upp. Sólin mun sýna sig eitthvað í öllum landshlutum um helgina nema síst í þokulofti og súld úti við norður- og austurströndina. Hitatölur munu nálgast 20 stig á Suðurlandi í dag, en jafnvel 21 til 23 stig á stöku stað vestan- og norðanlands hina dagana.
Ef ekki er rétti tíminn að fara í gönguferðir og útilegu eftir þessa veðurspá, þá hvenær?

Veðurhorfur á landinu
Norðaustan 3-8 m/s, en 8-13 suðaustantil. Skýjað, en þurrt að kalla á austanverðu landinu, en annars bjart með köflum. Bætir heldur í vind seinnipartinn og fer að rigna á Suðausturlandi í kvöld. Hiti 9 til 19 stig, hlýjast suðvestanlands.
Hæg suðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum á morgun, en sums staðar þungbúið við suður- og austurströndina. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast inn til landsins fyrir norðan og vestan. Spá gerð: 07.07.2023 04:52. Gildir til: 08.07.2023 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Breytileg átt, 3-8 m/s, en norðaustan 8-13 við suðausturströndina. Dálítil væta öðru hvoru á austanverðu landinu, en annars yfirleitt bjartviðri. Hiti víða 13 til 20 stig, en sums staðar hlýrra í innsveitum.

Á sunnudag:
Norðaustan 3-10 m/s og rigning með köflum, en yfirleitt þurrt og bjart sunnan- og vestanlands. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast á Suðurlandi, en mun svalara við sjávarsíðuna fyrir norðan.

Á mánudag:
Norðlæg átt, 5-13 m/s og skýjað, en víða bjartviðri sunnan heiða. Hiti 8 til 18 stig, mildast suðvestanlands.

Á þriðjudag:
Norðlæg átt og dálítil rigning, en þurrt að kalla á vestanverðu landinu og kólnar í veðri.

Á miðvikudag:
Norðlæg eða breytileg átt og dálitlar skúrir. Hiti 5 til 15 stig, mildast sunnanlands.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir ákveðna norðanátt með rigningu, en þurrt að mestu syðra.
Spá gerð: 06.07.2023 19:53. Gildir til: 13.07.2023 12:00.

Umræða
Share18Tweet12
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • 30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

    30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    60 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • LEB telur gliðnun á milli launa og grunnlífeyris vera með öllu óþolandi

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Þjófur sendur úr landi

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • Handtekinn fyrir ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni í Kópavogi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?