,,Tvo síðustu sólarhringa hafa 32 Palestínumenn verið myrtir í loftárásum Ísraelshers á Gaza. Í þeim hópi eru mörg börn og yfr 200 manns eru særðir og margir mjög alvarlega, þannig að dánartala fer stöðugt hækkandi.“ Segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og formaður félagsins Ísland-Palestína um árásina á Gaza og heldur áfram.
,,Ísraelsstjórn hefur haldið því fram að þetta séu forvarnaraðgerðir gegn íslömsku andspyrnuhreyfinguni, Islamic Jihad og hafa fangelsað helsta leiðtoga þeirra á Vesturbakkanum og tekið tvo leiðtoga af lífi með loftárásum á heimili þeirra.
Grimmd ísraelska hernámsins er söm við sig og ekki spáð í hvort börn verði líka fyrir sprengjunum. – Fjöldamorðingjunum sem stjórna Ísrael finnst ekk nóg komið og hafa sagst ætla að halda árásum áfram, að minnsta kosti í viku.
Að vanda hafa þeir stuðning frá Washington til illvirkanna, sem þeir kalla „að verja hendur sínar“. Þó var ekki um neinar árásir að ræða af háfu Palestínumanna, heldur vísar Ístraelssjórn til hótana af hálfu Islamic Jihad. Þá er rétt að hafa í huga að enn einar kosningarnar eru framundan í Ísrael og þá finnst ráðamönnum ráðlegt að sýnast stórir og sterkir í augum kjósenda.
Hins ber líka að gæta, svo óhugnanlegt sem það hljómar, að þegar litið er til baka í meira en hálfrar aldar hernám, þá hefur nýlenduherrunum þótt ráðlegt „að slá grasið“ af og til með árásum á óbreytta íbúa, og freista þess að lama baráttuþrek palestínsku þjóðarinnar. Þeim verður ekki kápan úr því klæðinu, fremur en fyrri daginn.“